Nýjar leiðbeiningar SART um úttektarmælingar rafverktaka

 

Samtök rafverktaka (SART) hafa látið útbúa vandaðar skýringarteikningar og leiðbeiningar um úttektarmælingar löggiltra rafverktaka. Efnið er ætlað að styðja rafverktaka við framkvæmd mælinga og stuðla að faglegum og samræmdum vinnubrögðum.

Leiðbeiningarnar voru unnar í góðu samstarfi við sérfræðinga Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).

Samstarf við birgja mælitækja

Samhliða vinnunni bauð SART helstu birgjum rafverktaka að taka þátt í verkefninu með því að leggja til skýringarmyndir og leiðbeiningatexta um notkun þeirra mælitækja sem þeir hafa á boðstólum.

Ískraft og Reykjafell tóku þátt í verkefninu og lögðu til upplýsingar um notkun Fluke- og Kyoritsu-mæla. Með því er leitast við að auðvelda rafverktökum að tengja almennar leiðbeiningar um úttektarmælingar við þau tæki sem þeir nota við dagleg störf.

Efnið aðgengilegt rafverktökum

Leiðbeiningar um notkun mælitækjanna eru aðgengilegar hjá Ískrafti og Reykjafelli. Skýringarteikningar SART um úttektarmælingarnar eru jafnframt aðgengilegar félagsmönnum á innri vef SART.

Með verkefninu vill SART efla þekkingu á úttektarmælingum og styðja löggilta rafverktaka við að sinna mikilvægu hlutverki sínu af fagmennsku. Verkefnið er jafnframt dæmi um samstarf atvinnugreinarinnar, stjórnvalda og birgja um að miðla hagnýtum upplýsingum og stuðla að gæðum og öryggi í rafiðnaði.

 

Á myndinni eru Þoovaldur Guðmundsson Verkefnastjóri hjá Reykjafelli og Brynjar Stefánsson framkvæmdastjóri Ískrafts með Kristjáni Daníel Sigurbergssyni framkvæmdastjóra Sart