Framkvæmdastjóri SART heimsótti Securitas

Fjölbreytt starfsemi og rík áhersla á fræðslu hjá Securitas

Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART, heimsótti á dögunum Securitas, sem er eitt af aðildarfyrirtækjum SART og Samtaka iðnaðarins.

Jóhann Gunnar Jóhannsson forstjóri, Guðrún Inga Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar, og Theodór Carl Steinþórsson, framkvæmdastjóri tækni og þróunar tóku á móti Kristjáni og kynntu starfsemi fyrirtækisins.

Starfsemi Securitas spannar vítt svið, allt frá öryggisvörslu og verðmætaflutningum til tæknilegra verkefna, meðal annars uppsetningar orkumæla fyrir Veitur á höfuðborgarsvæðinu, uppsetningar brunakerfa og aðgangsstýringakerfa, myndavéla og annarra hátæknilausna.

Hjá Securitas starfa rúmlega 550 manns og þar af er stór hópur fagmenntaðs starfsfólks. Um 68% starfsfólks í tæknistörfum eru með sveinspróf í rafiðngreinum 9 eru meistarar auk 13nema. Þá eru einnig 9 starfsmenn með sveinspróf í pípulögnum og 1 pípulagningameistari hjá fyrirtækinu.

Fræðsla mikilvægur hluti starfseminnar

Mikil áhersla er lögð á fræðslu og símenntun starfsfólks hjá Securitas. Fyrirtækið rekur meðal annars eigin fræðsluvef þar sem starfsfólki standa til boða og  starfsfólk í tækni getur tekið yfir 60 námskeið.

Fræðslan er liður í því að skapa starfsfólki tækifæri til að vaxa í starfi, efla þekkingu sína og færni og takast á við fjölbreyttari og flóknari verkefni. Með því er jafnframt byggð upp og viðhaldið mikilvæg fagþekking innan fyrirtækisins.

Þjálfunaraðstaða fyrir starfsfólk og nema

Óskar Ólafsson, löggiltur rafverktaki hjá Securitas, kynnti í heimsókninni sérstaka kennslu- og þjálfunaraðstöðu sem fyrirtækið hefur komið sér upp. Þar getur starfsfólk fengið verklega þjálfun í uppsetningu, notkun og viðhaldi þeirra kerfa og tæknilausna sem Securitas býður viðskiptavinum sínum.

Einnig var skoðuð aðstaða þar sem nemar í rafiðngreinum geta æft verklega þætti og undirbúið sig fyrir sveinspróf.

Á myndinni eru f.v. Guðrún Inga Guðlaugsdóttir, Kristján Daníel Sigurbergsson, Óskar Ólafsson og Jóhann Gunnar Jóhannsson