Myndbönd og upplýsingar um rafbílahleðslu

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gert þrjú fræðslumyndbönd um helstu atriði sem þarf að hafa í huga tengd rafbílum og hleðslu þeirra í samstarfi við Samtök rafverktaka, SART. Mikil aukning hefur orðið á rafbílum hér á landi og hafa hleðslustöðvar verið að spretta upp um allt land, bæði á heimilum og við vegi. Á vef HMS segir að þessi aukning sé einna jákvæðust fyrir þær sakir að allt rafmagn sem við Íslendingar notum er framleitt innanlands. Á heimilum með rafbíla eru þeir lang orkufrekasta raftækið. Mikilvægt er að kynna sér vel þær reglur sem hafa verið settar fram fyrir öryggi rafbíla, bæði tengt raflögnum og hleðslustöðvum. Það er sífellt að aukast að Íslendingar kaupi sér rafbíla og uppsetning þeirra þarf alltaf að gera ráð fyrir enn meiri fjölgun. Eigendur rafbíla í fjöleignarhúsum þurfa þó að gera allar breytingar í sameign með leyfi annarra íbúa.