Kynningarfundur hjá Mílu

Föstudaginn 20. september býður Míla félagsmenn SART velkomna á kynningarfund um frágang á fjarskiptalögnum í nýbyggingum.

Fundur hefst kl. 17:00 og stendur til kl. 19:00.

Dagskrá

  • Jón Ríkharð Kristjánsson framkvæmdastjóri Mílu kynnir Mílu og starfsemi fyrirtækisins
  • Jónas Friðbertsson sérfræðingur hjá Mílu kynnir hvernig skila á frágangi á innanhússlögnum ljósleiðara í nýbyggingum
  • Umræður og spurningar

 

Léttar veitingar verða í boði og vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.

 

Vinsamlega staðfestið Þátttöku!