Skilaboð til rafverktaka frá Veitum

Orkuveita Reykjavíkur vill koma eftirfarandi skilaboðum til rafverktaka:


Veitur óska eftir því að rafverktakar og þeirra starfsmenn gæti þess að aldrei séu vör í aðalvarrofum óspennusettra heimtauga. Þetta er mjög mikilvægt öryggisatriði til að hindra að bakspenna geti farið út í heimtaugastrenginn ef húsveitan fær spennu vegna vinnuljósa frá bráðabirgða heimtaug eða rafstöð. 

Þá hafa Veitur tekið upp það verklag að engin tengivinna fari fram nema að tryggja gegn innsetningu beggja vegna við tengistað, sem þýðir að ekki verður unnið við tengingu heimtaugar sem komin er inn í hús nema komast að strengenda inn í húsi. 

Þorvaldur Finnbogason