Sveinspróf í rafiðngreinum
	
		
		
					
			Fréttir	
		
		
					
	
				
		
	
			
		
			
	
		
			
		
		
			
	
	Opnað verður fyrir móttöku umsókna um sveinspróf í raf- og rafveituvirkjun mánudaginn 1. apríl nk. Umsóknartímabilið stendur yfir 1.-30. apríl vegna sveinsprófa sem haldin verða í byrjun júní 2019.
Umsækjandi þarf að hafa lokið samningsbundnu vinnustaðanámi og vera útskrifaður úr náminu. Með umsókn þarf að fylgja:
- Afrit af brautskráningarskírteini úr skóla.
- Afrit af námssamningi.
- Lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnustaðanámi.
 Óski próftaki eftir sérúrræði í sveinsprófi þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Rafmenntar.
 Nánari upplýsingar um sveinsprófin og umsóknir má finna hér.


