(+354) 591 0100

Símanúmer

sart@si.is

Netfang

Borgartún 35

Staðsetning

Fréttir

HMS leitar eftir þátttakendum til að prófa nýja Rafmagnsöryggisgátt

 

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur náð mikilvægum áfanga í þróun nýrrar Rafmagnsöryggisgáttar og er nú tilbúin að hefja prófanir á kerfinu. Af því tilefni er leitað til aðildarfyrirtækja SART eftir áhugasömum notendum sem vilja taka þátt í að prófa kerfið áður en það verður tekið formlega í notkun.

Endurgjöf notenda skiptir sköpum

Þátttaka notenda á þessu stigi er mikilvæg til að tryggja að nýja gáttin verði sem best úr garði gerð. Með því að prófa kerfið og veita endurgjöf geta sérfræðingar HMS greint mögulega annmarka, gert nauðsynlegar lagfæringar og bætt notendaupplifun áður en kerfið verður opnað fyrir alla.

HMS leggur áherslu á að sem flestir taki þátt í prófununum svo tryggja megi að lausnin mæti þörfum þeirra sem munu nýta hana í daglegum störfum.

Hvernig er hægt að taka þátt?

Áhugasamir félagsmenn geta óskað eftir aðgangi að prófunarkerfinu með því að senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Efni pósts:
Ósk um aðgang að nýju kerfi Rafmagnsöryggis

Í póstinum þurfa að koma fram:

  • Nafn
  • Kennitala

Þegar upplýsingar hafa borist verður aðgangur opnaður fyrir viðkomandi og staðfesting send á það netfang sem notað var við skráninguna.

Tækifæri til að hafa áhrif á þróun kerfisins

Prófanirnar gefa notendum tækifæri til að koma á framfæri reynslu sinni og ábendingum áður en nýja Rafmagnsöryggisgáttin verður tekin í almenna notkun. SART hvetur því félagsmenn sína til þátttöku og til að leggja sitt af mörkum við að móta öflugt og notendavænt kerfi fyrir greinina.

Að lokum vill HMS koma á framfæri þakklæti fyrir þann góða stuðning og samstarf sem félagsmenn SART hafa sýnt í verkefninu hingað til og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við innleiðingu nýju gáttarinnar.

SART og HMS hafa átt í farsælu samstarfi á sviði rafmagnsöryggismála um árabil. Með reglulegu samráði og sameiginlegri vinnu hefur verið unnið að því að efla öryggi, bæta þjónustu við notendur og stuðla að skilvirkara regluverki og framkvæmd rafmagnsöryggismála. Prófanir á nýju Rafmagnsöryggisgáttinni eru enn eitt dæmið um mikilvægi þess samstarfs og þátttöku fagfólks við þróun lausna sem þjóna greininni í heild.

Uppbygging íbúðahverfa skapar störf fyrir hundruð starfsgreina

Íbúðauppbygging hefur víðtæk áhrif á atvinnulíf og verðmætasköpun

Ný íbúðahverfi eru mun meira en hús og götur. Að baki hverju uppbyggingarverkefni stendur umfangsmikið samstarf fjölmargra sérfræðinga, fyrirtækja og iðngreina sem vinna saman að því að skapa samfélagslega innviði til framtíðar. Samkvæmt nýrri umfjöllun Kristjáns Daníels Sigurbergssonar, framkvæmdastjóra Samtaka rafverktaka, getur uppbygging stærri íbúðahverfa kallað á þátttöku allt að 250 starfsgreina frá fyrstu hugmynd að daglegum rekstri hverfis. 

Rafverktakar gegna lykilhlutverki í uppbyggingunni

Þegar skipulags- og hönnunarvinna er lokið taka framkvæmdir við. Þá koma fjölmargir iðnaðarmenn að verkefnunum, þar á meðal rafverktakar og rafvirkjar sem sjá um uppsetningu og tengingu rafkerfa, fjarskiptainnviða, öryggiskerfa og annarra tæknilausna sem nútíma hverfi byggja á. Kröfur um orkunýtni, stafræna innviði og snjalllausnir hafa aukið mikilvægi rafiðnaðarins í uppbyggingu nýrra hverfa á undanförnum árum.

Samdráttur í byggingariðnaði hefur víðtæk áhrif

Í greininni er bent á að áhrif samdráttar í byggingariðnaði nái langt út fyrir byggingarstaðina sjálfa. Þótt oft sé horft til áhrifa á húsasmiði, múrara og aðra iðnaðarmenn hafi minni uppbygging einnig áhrif á rafverktaka, aðfangakeðjur, flutningafyrirtæki, þjónustuaðila og fjölda annarra fyrirtækja sem tengjast mannvirkjagerð. Þá hefur atvinnulausum innan byggingariðnaðarins fjölgað á síðustu misserum og fyrirhugaðar breytingar á skattaumhverfi gætu dregið enn frekar úr uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.

Atvinnusköpun heldur áfram eftir að framkvæmdum lýkur

Þótt byggingaframkvæmdum ljúki þegar íbúðir eru afhentar heldur atvinnusköpunin áfram. Rekstur og viðhald hverfa krefst áframhaldandi þjónustu, þar á meðal reksturs veitukerfa, öryggislausna og tæknikerfa sem rafverktakar koma oft að bæði við uppsetningu og viðhald. Auk þess skapast ný störf í skólum, verslun, heilbrigðisþjónustu og annarri nærþjónustu eftir því sem hverfin byggjast upp.

Mikilvægt að tryggja stöðugt rekstrarumhverfi

Samtök rafverktaka leggja áherslu á að öflug og stöðug uppbygging íbúðarhúsnæðis sé ekki aðeins forsenda fyrir því að mæta húsnæðisþörf landsmanna heldur einnig fyrir atvinnu, verðmætasköpun og framþróun í fjölmörgum greinum. Skilvirk stjórnsýsla, fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi og skýr uppbyggingarstefna eru lykilatriði til að tryggja áframhaldandi verkefni fyrir fyrirtæki í rafiðnaði og öðrum greinum sem tengjast mannvirkjagerð.

Alþjóðlegur dagur rafvirkja - Opið hús ⚡

Taktu þátt með Rafmennt þann 10. júní og fagnaðu rafvirkjum – þeim faglærðu sérfræðingum sem halda samfélagslegum innviðum gangandi og styðja við seiglu Íslands og sjálfstæði í orkumálum!

Að þessu tilefni mun Rafmennt bjóða í opið hús milli 16.30 og 18.30. (1. hæð - gengið inn Grafarvogsmegin)

Á opnu húsi verða flutt tvö erindi um;
- Viðnámsþróttur á Þjórsársvæði, Magni Þ. Pálsson frá Landsnet
- Rafvirki framtíðarinnar, Stefán Pálsson mun lýsa fyrir okkur hans sýn
- Skemmtiatriði, Freyr Eyjólfsson

Grillvagninn verður fyrir utan að erindum loknum með hamborgara.

Framtíðin er rafmögnuð! ⚡

Athugið að skráning er nauðsynleg hér!

Sumargleði FLR

Félag löggiltra rafverktaka bíður félagsmönnum til Sumargleði að Bæjarflöt 4, 112 Reykjavík, fimmtudaginn 21. maí frá kl 17-?

 

Þeir Stefán Einar Stefánsson og Stefán Pálsson sem eru þjóðkunnir áhugamenn vín og bjór munu leiða félagsmenn í allan sannleikann um þessar guðaveigar.

Meðal annars verður boðið uppá:

  • Bjór og vínsmökkun
  • Grillaðar pylsur frá Pylsumeistaranum ásamt meðlæti.
  • Pílu keppni
  • Góðan félagsskap og gleði.

 Skráning er nauðsynleg og fer fram hér:  Sumargleði Félags löggiltra rafverktaka - FLR – Fill in form

 Félagsmönnum gefst einnig kostur á að taka með sér gesti sem hafa áhuga á að kynna sér aðild að FLR, í þeim tilfellum þarf að skrá gestina fyrir fram.

Grafalvarleg staða að teiknast upp á byggingarmarkaði

Jóhanna Klara Stefánsdóttir sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI var í Bítinu á Bylgjunni núna í morgun og ræddi meðal annars um boðaða lækkun stjórnvalda á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað sem gæti jafngilt að meðaltali 2,5-3 milljóna króna skattahækkun á byggingarkostnað 100 fermetra íbúðar. 

 

Hlekkur á viðtalið er hér:  https://www.visir.is/k/16fa9b6e-e53f-488a-adf9-1fb3200a1e32-1776844383796

Hér er hlekkur á greiningu SI þar sem fram kemur að fyrirhuguð hækkun skatta mun draga verulega úr íbúðauppbyggingu

https://www.si.is/media/_eplica-uppsetning/Greining-SI_Fyrirhugud-haekkun-skatta-mun-draga-verulega-ur-ibudauppbyggingu-16-04-2026.pdf

 

Bilanagreinar efla verklega kennslu í rafiðngreinum á Ísafirði

Bilanagreinar efla verklega kennslu í rafiðngreinum á Ísafirði

Menntaskólinn á Ísafirði hefur fengið tvo bilanagreina að gjöf frá Félagi rafverktaka á Vestfjörðum (FRVF), með stuðningi Samtaka rafverktaka (SART) og fjölmargra fyrirtækja á svæðinu. Gjöfin, sem metin er á um 2 milljónir króna, er mikilvæg viðbót við aðstöðu til kennslu í rafiðngreinum og mun styrkja verklega færni nemenda og undirbúning þeirra fyrir atvinnulífið.

Samstarf atvinnulífs og skóla lykilatriði

Að gjöfinni standa fyrirtæki úr raforku- og tæknigeiranum á Vestfjörðum, þar á meðal Póllinn, Rafskaut, Rafverk AG, Eyfaraf, ÓK raf, Kalli Raf og Grundarorka, auk SART, Smith & Norland, Orkubús Vestfjarða, Verkís, Íslenska kalkþörungafélagsins og Ístækni. Verkefnið er skýrt dæmi um árangursríkt samstarf atvinnulífs og menntakerfis.

Sævar Óskarsson, formaður FRVF, rakti aðdraganda gjafarinnar og lagði áherslu á að búnaðurinn hefði verið valinn með þarfir nemenda í huga. Markmiðið væri að efla nám í rafiðngreinum og styðja við þá sem kjósa iðnnám. Hann benti jafnframt á að eftirspurn eftir rafvirkjum væri mikil og að vel menntaðir fagmenn væru eftirsóttir á vinnumarkaði.

Fjárfesting í færni og framtíð

Pétur H. Halldórsson, formaður SART, undirstrikaði að gjöfin væri ekki einungis tæknibúnaður heldur fjárfesting í framtíðinni. Með aðgengi að nútímalegum búnaði fá nemendur dýrmæta innsýn í fagið og betri undirbúning fyrir raunveruleg verkefni. Hann lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að efla samstarf atvinnulífs og skóla, sérstaklega á landsbyggðinni.

Heiðrún Tryggvadóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, þakkaði fyrir gjöfina og sagði hana skipta miklu máli fyrir starfsemi skólans og nemendur hans. Þá benti Elfar Ari Stefánsson, kennari í rafiðngreinum, á að stuðningur fyrirtækja hefði bein áhrif á áhuga nemenda og tengsl þeirra við atvinnulífið.

Styður við uppbyggingu iðnmenntunar

Eftirspurn eftir rafvirkjum hefur aukist verulega á undanförnum árum og ljóst að þörf er á öflugri uppbyggingu iðnmenntunar. Gjöfin til Menntaskólans á Ísafirði er mikilvægt framlag í þá átt og sýnir hvernig fyrirtæki geta lagt sitt af mörkum til að efla menntun og tryggja aðgengi að hæfu starfsfólki.

Framtak sem þetta endurspeglar mikilvægt hlutverk Samtaka rafverktaka og aðildarfélaga þeirra við að bæta rekstrarumhverfi rafiðnaðarins, styðja við menntun og efla tengsl milli skóla og atvinnulífs. Með markvissu samstarfi er lagður grunnur að sterkari rafiðnaði og aukinni verðmætasköpun um land allt.

Frá vinstri.  Vignir Örn Pálsson Grundarorku, Magnús Valsson Rafskaut, Elías Jónatansson Orkubú Vestfjarða, Sævar Óskarsson form FRVF / Póllinn, Albert Guðmundsson Rafverk AG, Einar Yngvason Rafskaut, Jóhann Bæring Gunnarsson Ístækni og Pétur Hákon Halldórsson form SART

 

Frá vinstri. Sævar Óskarsson form FRVF / Póllinn, Heiðrún Tryggvadóttir Skólameistari, Elvar Ari Stefánsson Kennari Rafiðngreina, Pétur Hákon Halldórsson form SART


Samtök rafverktaka
Borgartún 35, 105 Reykjavík

Sími 591 0100
Fax 591 0101
Kt. 420269-0729
sart@si.is

Sterkari saman

Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu hagsmunasamtök atvinnurekenda á Íslandi.

Öryggi - Fagmennska

Merki samtakanna eru skrásett vörumerki og eru trygging fyrir fagmennsku, öryggi og traustum viðskiptaháttum.