Beint á leiðarkerfi vefsins
Sart.is

Samtök atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins
Með aðild að SART tryggja aðilarfyrirtækin sér áhrif í Samtökum atvinnulífsins, en aðild að SA fæst einungis gegnum aðildarfélögin, sem eru sjö og var SART eitt af stofnfélögunum. SA starfar á grundvelli atvinnugreina og aðildarfélögin hafa frumkvæði í málefnum þeirra, hvert á sínu sviði. Þau aðstoða m.a. fyrirtæki í flóknum samskiptum við stjórnvöld og leiðbeina þeim um allt það sem snertir sívaxandi fjölda opinberra reglugerðarákvæða og fyrirmæla.

Áætlað er að tæp 50.000 ársverk séu unnin innan þeirra 2.800 fyrirtækja sem aðild eiga að SA.  Auk SART eru aðildarfélögin þessi: Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fiskvinnslustöðva, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

SA og samskiptin við launþega
Samtök atvinnulífsins eiga samskipti við stéttarfélög og skipa fulltrúa atvinnurekenda í heildarsamningum við samtök launafólks,  aðstoða við gerð fyrirtækjasamninga og þróun launakerfa. SA veita atvinnurekendum einstæðar tryggingar í vinnudeilum. Aðildarfyrirtækin eiga rétt á bótum úr sérstökum vinnudeilusjóði SA ef stöðvun verður á atvinnurekstri þeirra að hluta eða öllu leyti af völdum verkfalls sem boðað er af stéttarfélögum starfsmanna.

Fjölþætt þjónusta og ráðgjöf  SA
Hjá Samtökum atvinnulífsins starfa sérfræðingar sem veita aðildarfélögum og fyrirtækjum fjölþætta ráðgjöf, þjónustu og upplýsingar. Helstu þættir sérfræðiþjónustunnar eru: Kjaramál og vinnuréttur - Efnahagsmál og hagfræðilegar upplýsingar - Skattamál - Umhverfismál - Vinnuverndarmál - Menntamál - Gerð fyrirtækjasamninga.

SA á alþjóðlegum vettvangi
Starfsskilyrði atvinnulífs á Íslandi og lífskjör landsmanna byggjast að stórum hluta á þátttöku í alþjóðasamskiptum, aðgangi að mörkuðum og tengslum við önnur lönd. Ákvarðanir sem snerta þróunarmöguleika og samkeppnishæfni fyrirtækja eru í auknum mæli teknar á alþjóðavettvangi. Þannig á stór hluti þeirra reglna sem gilda á Íslandi um atvinnurekstur rætur að rekja til Evrópusambandsins. SA taka virkan þátt í Samtökum evrópskra iðn- og atvinnurekenda, UNICE, sem geta haft áhrif á mótun þeirra reglna. Hjá SA starfa sérfræðingar í alþjóðamálum og samtökin reka skrifstofu í Brussel til að fræðast og fylgja eftir hagsmunamálum íslensks atvinnulífs.

Sjá heimasíðu SA


Samstarfsaðilar

Smelltu á mynd til að fara á vef

Rafiðnaðarskólinn
Fræðsluskrifstofa
Rafiðnarasambandið
Rafbók
Ákvæðisvinnustofa 
Brunamálastofnun til hægri 
Sa til hægri
Stafir til hægri


Slóðin þín:

Um SART » Samtök atvinnulífsins

Toppmynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Veftré