Orlofshús
Orlofshúsið Ásgarði í Grímsnesi
Orlofshús samtakanna er staðsett í fallegu umhverfi í landi Ásgarðs í Grímsnesi, ekki langt frá Álftavatni. Húsið stendur nokkuð hátt með góðu útsýni til allra átta m.a. yfir "Fljótið helga" en svo kallaði Tómas Guðmundsson skáld Sogið. Landið er kjarri vaxið og auðvelt er að finna skjól í hraunbollum allt í kringum húsið.
Húsið er veglega búið húsgögnum ásamt eldhús- og borðbúnaði fyrir 12 manns. Svefnsstæði og sængur eru fyrir 5 en auk þess er svefnloft með dýnum sem auðveldlega rúma 7 til viðbótar. Þá fylgir húsinu kolagrill, gasgrill og garðhúsgögn. Á grasflötinni framan við húsið eru rólur og sandkassi fyrir börn á öllum aldri.
Hitaveita, heitur pottur, sólpallar og baðhús gerir það að verkum að húsið er vinsæll hvíldarstaður jafnt að sumri sem vetri.
Dægradvöl
Sundlaug er á Írafossi í um 10 mín. akstursfjarlægð og einnig eru sundlaugar á Selfossi og í Hveragerði. Þá er einnig stutt í söluskálann við Þrastarlund sem selur ýmislegt til nota í sumarbústöðum. Einnig er stutt að skreppa á Selfoss til að versla nauðsynjar.
Ef fara á í skoðunarferðir um nágrennið þá er stutt að fara t.d. í Sogsvirkjanir, Nesjavallavirkjun, Þingvelli, Kerið, Gullfoss, Geysi, Skálholt, Laugarás, Reyki og Sólheima í Grímsnesi, svo fátt eitt sé nefnt.
Þeir sem hafa áhuga á veiði geta farið t.d. í Úlfljótsvatn eða Þingvallavatn og eru veiðileyfin í Úlfljótsvatn seld á Efri brú en veiðileyfin í Þingvallavatn í þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum. Þá selja bændur einnig veiðieyfi í Brúará.
Yfir sumartímann er húsið leigt eina viku í senn, frá föstudegi til föstudags en á veturna er húsið einnig leigt um helgar (föstudag til sunnudags/mánudags). Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu SART.
Sækja um > sart@sart.is
Vetrarmyndir
smellið á þær til að stækka....
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef

















