Beint á leiðarkerfi vefsins
Sart.is

Hversvegna SART og SA ?

 Án fyrirtækjanna væru engin samtök til. Með félagsaðild sinni stuðla fyrirtækin að eflingu atvinnulífs á Íslandi og leggja sitt af mörkum við að bæta rekstrar-umhverfi sitt.  

SART

SART annast samskipti við hið opinbera- og einka aðila um allt er varðar hagsmuni greinarinnar. Leitað er  til SART þegar sett eða breytt er lögum og reglugerðum er varða starfsemi rafverktaka hvort sem er á sterk- eða veikstraumssviði. Sérstakt fagráð skipað af SART er tengiliður við rafmagnsöryggissvið Brunamálastofnunar. SART á jafnframt fulltrúa í Rafmagnsöryggisráði sem er bakland rafmagnsöryggissviðsins.

SART er í góðu sambandi við Fjarskiptastofnun, Símann, Vodafone, Gagnaveituna og fleiri aðila er koma að fjarskiptamálum og verkefnum þeim tengdum. SART heldur uppi öflugu sambandi við byrgja og aðra tengda aðila til hagsmuna fyrir félagsmenn.

Upplýsingagjöf.
SART rekur heimasíðu http://www.sart.is/ og miðlar jafnframt fréttum í rafrænu fréttabréfi sem sent er út reglulega. Þá miðlar skrifstofan upplýsingum til félagsmanna í gegnum tölvupóst. SART heldur mánaðarlega  kaffifundi til tengsla og kynninga. Þar koma fyrirlesarar sem fræða menn um nýjungar og hagnýta hluti.  Skrifstofan skipuleggur félagastarfið, fundi aðildarfélaga og fundi SART. Skrifstofa SART svarar fyrirspurnum frá fólki út í bæ varðandi rafmagnsmál, fjarskiptamál og viðskipti við rafverktaka.

Ágreiningsmál:
SART hefur milligöngu um að leysa ágreiningsmál sem upp koma milli félagsmanna og við-skiptavina þeirra. Þá gætir SART í samráði við SA hagsmuna rafverktaka hvað varðar sam-keppni á markaði. SART lætur sig varða útboðsmál hvort heldur þau eru á vegum einka aðila, opiberra aðila, sveitarfélaga eða ríkis. Oft þarf að meta stöðu einstakra mála, veita álit eða aðstoð, t.a.m. við bréfaskriftir og er þá oft leitað til lögmanna SA.

Menntamál
SART á og rekur Rafiðnaðarskólann í samvinnu við RSÍ. SART lætur sig menntamálin mikið varða og eiga fulltrúa í eftirfarandi nefndum og ráðum: Eftirmenntunarnefndum veik- og sterkstraums, Fagráði Tækniskóla Íslands ehf, framkvæmdastjórn Rafiðnaðarskólans, starfsgreinaráði í rafiðngreinum, stjórn Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins, stjórn Menntasjóðs rafiðnaðarins, sveinsprófsnefndum veik- og sterkstraums.

Ákvæðisvinnustofa
SART rekur Ákvæðisvinnustofu rafiðna í samstarfi við RSÍ. Starfsmaður stofunnar sér um geislafjöðrina fyrir SART (sem finnur týndar dósir og rör ).

Vildarkjör til félagsmanna SART
SART vinnur að því að leita tilboða í vöru og þjónustu fyrir félagsmenn SART.

Kjarasamningar
SART gerir kjarasamning við RSÍ í samráði við Samtök atvinnulífsins ( Sjá SA )

Merki samtakanna
Markmið er að litið sé á merki samtakanna sem tákn um „öryggi og fagmennsku".
Heiðarleiki og vönduð vinnubrögð eru kjörorð samtakanna.  

Útgáfumál.
Sem dæmi um starf SART á þessu sviði má m.a. nefna:

  • TS-151 Tæknireglur um fjarskiptalagnir sem gefið hefur verið út af Rafstaðlaráði. Þetta verk er unnið að frumkvæði SART og stjórnað af fulltrúa samtakanna.
  • Staðlavísir sem er hjálparmiðill til styrktar ÍST-200. Verkið er unnið að frumkvæði SART og með leyfi Norsku rafverktakasamtakanna í samstarfi við Staðlaráð.
  • LÍR-ös öryggisstjórnunarkerfið var á sínum tíma gefið út af samtökunum og tekið til kennslu í Rafiðnaðarskólanum. Unnið er að uppfærslu á því kerfi.
  • SART birtir hagtölur rafiðngreina á heimasíðu sinni ásamt fleiri hagnýtum upplýsingum.

Samtök atvinnulífsins
SA kappkosta að veita aðildarfyrirtækjum góða þjónustu og að vera öflugur málsvari atvinnulífsins. Lögfræðingar á vinnumarkaðssviði SA sinna þjónustu við félagsmenn SA á sviði kjara- og starfsmannamála.

Hlutverk vinnumarkaðssviðs SA er m.a. að:

  • veita fyrirtækjum sérfræðiþjónustu í vinnumarkaðs- og vinnuréttarmálum
  • vera í fyrirsvari fyrir fyrirtækin í vinnudeilum og ágreiningsmálum gagnvart stéttarfélögum
  • gæta hagsmuna atvinnulífsins með markvissri fræðslu og þátttöku í mótun og framkvæmd laga og reglna og í þjóðfélagsumræðunni almennt.

Lögfræðingar SA:

  • aðstoða aðildarfyrirtækin við túlkun samninga og laga
  • veita fyrirtækjum ráðgjöf og aðstoða við samningsgerð við starfsmenn, s.s. við gerð ráðningarsamninga og fyrirtækjasamninga
  • aðstoða fyrirtækin í samskiptum við stéttarfélög og lögmenn
  • annast málflutning fyrir héraðsdómi fyrir hönd aðildarfyrirtækja í fordæmisgefandi málum
  • flytja mál fyrir Félagsdómi fyrir hönd samtakanna vegna aðildarfyrirtækja
  • eru í samskiptum við stjórnvöld í málum sem snerta hagsmuni atvinnulífsins
  • annast upplýsingagjöf og fræðslu
  • byggja upp og viðhalda Vinnumarkaðsvef SA sem eingöngu er opinn félagsmönnum SA

Auk kjara- og starfsmannamála veita SA félagsmönnum ýmsa aðra þjónustu, t.d. á sviðum efnahags-, Evrópu-, umhverfis- og vinnuverndarmála. Sjá nánar um kosti aðildar að SA

Samtök atvinnulífsins starfrækja réttarverndarsjóð sem hefur það hlutverk að standa straum af kostnaði vegna málareksturs og annarrar réttarvörslu í málum sem snerta hagsmuni atvinnulífsins eða margra félagsmanna.



Samstarfsaðilar

Smelltu á mynd til að fara á vef

Rafiðnaðarskólinn
Fræðsluskrifstofa
Rafiðnarasambandið
Rafbók
Ákvæðisvinnustofa 
Brunamálastofnun til hægri 
Sa til hægri
Stafir til hægri


Slóðin þín:

Um SART » Hversvegna SART og SA ?

Toppmynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Veftré