Beint á leiðarkerfi vefsins
Sart.is

Um SART

SART eru samtök fyrirtækja í rafiðnaði. Stærsti hluti félagsmanna eru rafverktakar, en það eru rafvirkjameistarar og rafeindavirkjameistarar sem reka sín eigin fyrirtæki, eru með rafiðnaðarmenn í vinnu og bera faglega ábyrgð á öllum verkefnum fyrirtækisins. Stefna samtakanna er að veita félagsmönnum sínum margvíslega þjónustu og fyrirgreiðslu um hvað eina er snýr að atvinnurekstri og að vera málsvari þeirra gagnvart almenningi og opinberum aðilum.

Kjörorð samtakanna eru:  Öryggi, fagmennska. 
Helstu verkefnin eru:
Að vinna að aukinni arðsemi fyrirtækja í rafiðnaði
Að annast kjaramál,  þ.m.t. gerð kjarasamninga
Að standa vörð um réttindi og löggildingu rafiðnaðarmanna
Að tryggja þekkingu og færni í greininni með aukinni menntun
Að kynna merki samtakanna sem tákn fyrir gæði, öryggi og fagmennsku í rafiðnaði

SART eru jafnframt aðilar að Samtökum atvinnulífsins, en það eru heildarsamtök íslenskra atvinnurekenda sem hafa það að megin-markmiði að skapa fyrirtækjum hagstæð skilyrði til að vaxa, þróast og bera arð. Samtökin kappkosta að veita félögum góða þjónustu og að vera öflugur málsvari atvinnulífsins í landinu.

Rafiðnaðarskólinn
SART og RSÍ eiga og reka Rafiðnaðarskólann sem er öflug stofnun á sviði  starfs-, endur- og símenntunar. Aðild að SART opnar því fyrirtækjunum aukna möguleika í menntunar-málum starfsmanna og stjórnenda.

SART og Norrænt samstarf
Íslenskir rafverktakar eru í góðu samstarfi  við samtök rafverktaka á Norðurlöndunum. Þá á SART aðild að NEUK, sem er samstarfsnefnd norrænna rafvirkja og rafverktaka um eftirmenntun og almenna menntun í greininni. Þessi samvinna hefur nú skipað norrænum rafiðnaðar-mönnum í fremstu röð á sínu sviði.

Efst


Samstarfsaðilar

Smelltu á mynd til að fara á vef

Rafiðnaðarskólinn
Fræðsluskrifstofa
Rafiðnarasambandið
Rafbók
Ákvæðisvinnustofa 
Brunamálastofnun til hægri 
Sa til hægri
Stafir til hægri


Slóðin þín:

Um SART

Toppmynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Veftré