Öryggi / fagmennska
Löggiltur rafverktaki
Viðurkenndur rafeindavirkjameistari
ÖRYGGI - FAGMENNSKA
Markmið aðildarfyrirtækja SART er að veita á hverjum tíma þá bestu þjónustu sem völ er á. Merki samtakanna eru skrásett vörumerki og engum öðrum en félagsmönnum er heimil notkun þeirra. Hafa ber í huga að merkin eru trygging fyrir fagmennsku, öryggi og traustum viðskiptaháttum.
Löggiltir rafverktakar
Einungis rafverktakar sem löggiltir eru af Brunamálastofnun mega taka að sér rafverktöku og/eða annast viðgerðir á hvers konar rafföngum. Löggiltir rafverktakar starfa eftir skilgreindu öryggisstjórnunarkerfi til að tryggja eins og hægt er að starfsemi þeirra sé samkvæmt öryggiskröfum laga og reglugerða þannig að kröfum um gæði vinnu og öryggi búnaðar, sem gerðar eru í samræmi við lög og reglugerðir, sé fullnægt.
Rafeindavirkjameistarar
Rafeindavirkjun er iðngrein sem ávallt skal rekin undir handleiðslu meistara. Fyrirtæki í rafeindaiðnaði annast sölu, uppsetningu, viðhald og viðgerðir á almennum rafeindabúnaði s.s. tölvum, útvarps-, hljómflutnings-, síma- og sjónvarpstækjum, loftnetum og gervihnatta-búnaði. Fyrirtæki í rafeindaiðnaði annast jafnframt sölu uppsetningu, viðhald og viðgerðir á margskonar fjarskiptakerfum og öðrum búnaði t.a.m. í farartækjum á landi, lofti og sjó. Má þar m.a. nefna útvörp, talstöðvar, farsíma, staðsetningartæki, sjálfstýribúnað, ratsjártæki og fiskileitar-tæki.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef











