Beint á leiðarkerfi vefsins
Sart.is

Virðisaukaskattur

Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði og sumarhús.
Eigendum íbúðarhúsnæðis er endurgreiddur sá virðisaukaskattur sem þeir greiða af vinnu (iðnaðar/verka)manna á byggingarstað vegna nýbygginga, endurbóta og viðhalds. Af vinnu sem unnin er fyrir 1. mars 2009 er endurgreiddur hluti (60%) af virðisaukaskatti. Gildistími fullrar endurgreiðslu er frá 1. mars 2009 til 1. janúar 2011. Ekki er endurgreiddur virðisaukaskattur af byggingarefni, vélavinnu né sérfræðiþjónustu t.d. vegna þjónustu verkfræðinga eða arkitekta.

Það er skattstjóri, í því umdæmi þar sem umsækjandi er skráður með lögheimili, sem afgreiðir endurgreiðslubeiðnir þessar. Nánar upplýsingar er að finna í reglugerðum nr. 449/1990 og 440/2009.

Til þess að sækja um endurgreiðslu er notað eyðublaðið RSK 10.18 endurgreiðsla til byggingaraðila vegna vinnu á byggingarstað við endurbætur eða viðhald á íbúðarhúsnæði. Eyðublaðið RSK 10.19 er notað til að sækja um endurgreiðslu vegna aðkeyptrar vinnu verktaka við nýbyggingu á íbúðarhúsnæði til eigin nota. Bæði þessi eyðublöð er hægt að fá hjá skattstjórum eða að velja þau úr dálknum hér til hægri.

Með beiðni um endurgreiðslu þarf að fylgja frumrit reikninga ásamt staðfestingu á því að þeir hafi verið greiddir. Endurgreiðslur vegna endurbóta og viðhalds eru afgreiddar innan fimmtán daga frá móttöku en endurgreiðslur vegna nýbygginga á tveggja mánaða fresti. Nánari upplýsingar er að finna á leiðbeiningum sem eru prentaðar aftan á eyðublöðin.

Ekki er hægt að sækja um endurgreiðslur lengra aftur í tímann en sex ár talið frá því að endurgreiðsluréttur stofnaðist.


Samstarfsaðilar

Smelltu á mynd til að fara á vef

Rafiðnaðarskólinn
Fræðsluskrifstofa
Rafiðnarasambandið
Rafbók
Ákvæðisvinnustofa 
Brunamálastofnun til hægri 
Sa til hægri
Stafir til hægri


Slóðin þín:

Rafmagnsöryggi » Húsbyggjandinn » Virðisaukaskattur

Toppmynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Veftré