Rafmagnsöryggi
Brunamálastofnun
Rafmagnsöryggissvið Brunamálastofnunar hefur yfirumsjón með rafmagns-öryggismálum á Íslandi, markaðseftirliti raffanga og skoðunum á raforkuvirkjum, neysluveitum (heimilum og fyrirtækjum) og öryggisstjórnunarkerfum rafveitna og rafverktaka.
Auk þess gefur Brunamálastofnun út kynningar- og fræðsluefni er varðar rafmagnsöryggi. Það er hlutverk rafmagnsöryggissviðs Brunamálastofnunar að hafa eftirlit með vörnum gegn hættu og tjóni af raforkuvirkjum, neysluveitum og rafföngum og truflunum af þeirra völdum.
Löggilding rafverktaka
Einungis rafverktakar sem löggiltir eru af Brunamálastofnun mega taka að sér rafverktöku og/eða annast viðgerðir á hvers konar rafföngum. Rafverktakar sem löggiltir eru af Bruna-málastofnun starfa eftir skilgreindu öryggisstjórnunarkerfi til að tryggja eins og hægt er að starfsemi þeirra sé samkvæmt öryggiskröfum laga og reglugerða þannig að kröfum um gæði vinnu og öryggi búnaðar, sem gerðar eru í samræmi við lög og reglugerðir, sé fullnægt.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef












