Fréttir
9.7.2012
Styrkir til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar haustið 2012
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að hvetja fyrirtæki eða stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Umsækjendur skulu uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi. Þeir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila með náminu og leggja fram áætlun um vinnustaðanámið og fyrirsjáanlega framvindu þess.

- Styrkir geta numið allt að 20 þús. kr. á viku og eru veittir til 24 vikna að hámarki. Styrkur er greiddur eftir því sem námi vindur fram.
- Umsóknum er skilað á sérstöku eyðublaði (Opnast í nýjum vafraglugga)
- Umsókn skal fylgja yfirlit um framvindu vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar.
- Nánari upplýsingar veitir Ólafur Grétar Kristjánsson í síma 545 9500 eða í tölvupósti á olafur.g.kristjansson@mrn.is
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2012
Frétt af www.si.is
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef