Fréttir
6.1.2012
Fjöldi íbúða í byggingu
Samtök iðnaðarins stóðu nýverið fyrir talningu íbúða í byggingu á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Niðurstaðan er að íbúðir sem eru fokheldar eða lengra komnar eru 1175 talsins og hafin er bygging á 244 íbúðum til viðbótar.
Samtals eru þetta því 1419 íbúðir. Talið er að árlega þurfi um 1500 nýjar íbúðir inn á markaðinn og eru íbúðir í byggingu því innan við áætlaða ársþörf. Þá þarf að hafa í huga að byggingartími íbúðar í fjölbýli er 18-24 mánuðir þannig að ljóst er að íbúðir í byggingu eru langt frá því að fullnægja þörf markaðarins.
Sjá nánar á vef SI

Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef