Fréttir
9.9.2011
Morgunverðarfundur fimmtudaginn 15. september
Á morgunverðarfundi fimmtudaginn 15. september kl. 08:45-10:00 í Borgartúni 35, 6. hæð, mun Leifur Gústafsson kynna nýtt áhættumat fyrir rafverktaka sem Vinnueftirlitið og SART hafa unnið í sameiningu. Gögn vegna áhættumatsins hafa verið sett inn á vef SART.
Allir vinnustaðir eiga að gera áhættumat. Áhættumatið er verkfæri vinnustaðarins til að bæta vinnuaðstæður og koma í veg fyrir slys og heilsutjón. SART og Vinnueftirlitið hafa í samstarfi útbúið gögn til að auðvelda rafverktökum og félagsmönnum að gera áhættumat fyrir sinn vinnustað.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef