Fréttir
24.8.2010
Stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki
Í lok árs 2009 voru samþykkt lög á Alþingi um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki (nr. 152/2009). Lögin kveða á um að fyrirtæki geti fengið skattfrádrátt vegna kostnaðar við rannsóknir og þróunarstarf og að fjárfestar fái skattafslátt vegna fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum. Opið er fyrir rafrænar umsóknir.
Til að skattyfirvöld veiti slíka ívilnun er gerð krafa um að Rannís veiti staðfestingu á að um nýsköpunarfyrirtæki sé að ræða í samræmi við ákvæði laganna. Gildir afgreiðslan fyrir yfirstandandi almanaksár.
Rannís hefur komið upp rafrænu umsóknarkerfi í tengslum við lögin um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Umsóknarfrestur er til 1. september n.k. Fyrirtæki þurfa að skrá sig í umsóknarkerfið fyrir þann tíma, en að þessu sinni verður veitt svigrúm til að ljúka umsóknum til 20. september.
Sjá nánar á vef Rannís
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













