Fréttir
22.6.2010
Breytt fyrirkomulag móttöku heimtauga frá OR.
Sú breyting hefur orðið á framkvæmd afgreiðslu heimlagna hjá Orkuveitu Reykjavíkur, að fyrirtækið leggur ekki lengur til inntaksskápa, heldur aðeins ídráttarrör frá lóðarmörkum að húsvegg. Á þetta við um einbýlis- og raðhús, minni fjölbýlishús og sambærilegt húsnæði allt að 3000 m3. Það er því aftur orðið hlutverk rafverktakans að leggja til og koma fyrir aðaltöflu.
Vert er að vekja athygli á því að heimilt er að fara með ídráttarrör fyrir rafmagn og fjarskipti inn fyrir vatnsheimæðarnar í inntaksrýminu með því að skipta gólfmátinu í tvennt. Gæta þarf þess að öll ídráttarrörin séu heil og að ídráttur heimlagna verði auðveldur.
Í byggingarreglugerð er inntaksrými skilgreint sem það rými eða klefi þar sem stofnleiðslur fyrir heitt og kalt vatn, rafmagn og síma tengjast húsi. Í fjöleignarhúsum skulu slík rými ætíð vera í sameign.
Allar nánari upplýsingar má finna á vef Orkuveitunnar...
http://www.or.is/Fyrirtaeki/Vegnaframkvaemda/Saekjaumheimlogn/
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













