Fréttir
22.2.2010
Áhættumat fyrir rafverktaka
Vinnueftirlit ríkisins hefur ákveðið að hefja vinnu við gerð áhættumats fyrir raflagnavinnu í samstarfi við SART. Áætlað er að vísir að gátlista geti legið fyrir í lok apríl. Tilgangur með gerð skriflegrar áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustað er að fyrirbyggja og draga úr slysum, óhöppum, álagi, vanlíðan og heilsutjóni sem starfsmenn geta orðið fyrir við störf sín hvort sem er líkamlegu eða andlegu. Áhættumat starfa er viðamesta aðgerðin í verkinu.
Auknar kröfur um áhættumat í útboðum kalla m.a. á að rafverktakar komi þessum málum í gott horf. SART stefnir á að í kjölfar samstarfsins við Vinnueftirlitið verði til dæmi um áhættumat fyrir raflaganvinnu sem fyrirtækin geta byggt ofan á, allt eftir eðli starfseminnar og umfangi verkefna.
Sjá Leiðbeiningar um áhættumat á vef VER
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef











