Fréttir
8.2.2010
Vísitala byggingarkostnaðar á nýjum grunni
Vísitala byggingarkostnaðar var birt á nýjum grunni þann 21. janúar síðastliðinn. Nýtt vísitöluhús liggur til grundvallar og fór vinna við magntöku þess fram í nánu samstarfi við reynda verktaka á byggingarmarkaði. Nýja vísitöluhúsið er 18 íbúða svalagangshús á höfuðborgarsvæðinu.
Með nýjum grunni verða einnig smávægilegar breytingar á samsetningu byggingar-vísitölunnar í samræmi við leiðbeiningar hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Mæling á vinnuliðum breytist og byggist nú á launarannsókn Hagstofu Íslands í stað þess að fylgja töxtum úr opinberum kjarasamningum. Öll gagnasöfnun vísitölunnar er rafræn og fer fram um miðjan hvern mánuð eins og áður.
Í hagtíðindaheftinu Vísitala byggingarkostnaðar á nýjum grunni er gerð ítarleg grein fyrir gerð magngrunnsins, nýju vísitöluhúsi lýst og aðferðafræði vísitölunnar útlistuð.
Sjá nánar á vef Hagstofunnar

Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef