UHF loftnet í stað örbylgju

Vodafone mun á næstunni loka endurvarpsstöð sem hefur hingað til dreift sjónvarpsútsendingum yfir örbylgju á höfuðborgarsvæðinu.

Ástæða lokunarinnar er tilskipun Póst- og fjarskiptastofnunar. 
Athugið að ekki er verið að slökkva á öllum sjónvarpsútsendingum um loftnet, eingöngu er um að ræða sjónvarpsútsendingar um örbylgjuloftnet, UHF loftnetin verða áfram í fullu gildi.
Á "vef Vodafone" má sjá niðurtökuáætlun örbylgjusjónvarps á höfuðborgarsvæðinu.