Vorhátíð FLR 2019

Fjölmenni var á vorhátíð FLR sem haldin var 29 maí sl.
Rafverktökum í FLR ásamt mökum var boðið í glæsilega veislu hjá Johann Rönning. Frábær matur, örugg og fumlaus veislustjórn Gísla Einarssonar ásamt  frábærum tónlistarflutning Jóhönnu Guðrúnar og Davíðs Sigurgeirssonar settu góðan svip á kvöldið. Að borðhaldi loknu sá Blúsband JB um danstónlist eins og þeim einum er lagið.


Þetta kvöld verður lengi í minnum haft og eiga starfsmenn Rönning heiður skilinn fyrir góðan undirbúning og höfðinglegar móttökur.