Fréttir
13.1.2011
Áhættumat fyrir rafverktaka kynnt á morgunverðarfundi
Á morgunverðarfundi SART sem haldinn var fimmtudaginn 13. janúar sl. kynnti Leifur Gústafsson frá Vinnueftirliti ríkisins gerð áhættumats fyrir raflagnavinnu sem stofnunin hefur unnið að í samstarfi við SART. Tilgangur með gerð skriflegrar áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustað er að fyrirbyggja og draga úr slysum, óhöppum, álagi, vanlíðan og heilsutjóni sem starfsmenn geta orðið fyrir við störf sín, hvort sem er líkamlegu eða andlegu. Áhættumat starfa er viðamesta aðgerðin í verkinu.
12.1.2011
SA vilja samstöðu um atvinnusókn
Viðræður aðila vinnumarkaðarins um nýja kjarasamninga eru nú komnar á skrið eftir að hafa legið niðri yfir jól og áramót. Í gær áttu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins fund með samninganefnd Alþýðusambands Íslands og í hádeginu í dag funduðu SA með leiðtogum ríkisstjórnarflokkanna, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni. Á fundum Samtaka atvinnulífsins með ASÍ og ríkisstjórninni lögðu SA fram samantekt vegna kjaraviðræðnanna þar sem sett eru fram meginmarkmið SA og yfirlit um þau mál sem samtökin vilja að ríkisstjórn og Alþingi taki til umfjöllunar og afgreiðslu samhliða gerð nýrra kjarasamninga.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













