Fréttir
27.8.2010
Vinnustaðaskírteini
Þann 15. ágúst sl. tók gildi samkomulag SA og ASÍ um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Samkomulagið byggir á lögum nr. 42/2010 um sama efni sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni. Öllum atvinnurekendum í hlutaðeigandi greinum ber að sjá til þess að starfsmenn fái vinnustaðaskírteini þegar þeir hefja störf.
24.8.2010
Stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki
Í lok árs 2009 voru samþykkt lög á Alþingi um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki (nr. 152/2009). Lögin kveða á um að fyrirtæki geti fengið skattfrádrátt vegna kostnaðar við rannsóknir og þróunarstarf og að fjárfestar fái skattafslátt vegna fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum. Opið er fyrir rafrænar umsóknir.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













