Fréttir
28.5.2009
Rafmagnsöryggi til Brunamálastofnunar
Eins og áður hefur komið fram mun yfirstjórn rafmagnsöryggismála flytjast frá viðskiptaráðherra til umhverfisráðherra og dagleg fram-kvæmd málaflokksins frá Neytendastofu til Brunamálastofnunar þann 1. júní n.k.
25.5.2009
Gátlisti fyrirtækja vegna inflúensufaraldurs
Á vef SA má nálgast gátlista sem tekinn var saman fyrr á þessu ári af aðilum sem unnu að landsáætlun vegna viðbragða við alheims-inflúensu. Beinist listinn sérstaklega að fyrirtækjum og er ætlað styðja þau við gerð eigin viðbragðsáætlana vegna mannskæðra inflúensu-faraldra og fyrirbyggja að rekstur fyrirtækja rofni vegna þeirra. Eitt tilfelli inflúensu A (H1N1) hefur verið staðfest hér á landi.
19.5.2009
Office1 og SART semja um góð kjör......
SART og Office 1 Superstore hafa gert með sér samkomulag um sérstök viðskipta og afsláttarkjör til félagsmanna SART. Verslanir Office1 eru víða um land, Reykjavík, Hafnarfirði, Selfossi, Vestmanna-eyjum, Egilstöðum, Akureyri og Ísafirði. Auk þessa er Office1 með myndarlega netverslun og heimsendingarþjónustu.
15.5.2009
N1 og SART semja um vildarkjör fyrir rafverktaka
N1 og SART hafa gert með sér samkomulag um viðskipta- og afsláttakjör til allra starfsmanna þeirra fyrirtækja sem tilheyra SART. N1 býður jafnframt fyrirtækjunum upp á samning um sérstök vildarkjör, allt eftir stærð og umfangi fyrirtækjanna.
14.5.2009
Orlofsuppbót 2009
Ákvæði kjarasamninga um orlofsuppbót voru einfölduð í kjara-samningum 2008. Helstu breytingar voru þær að orlofsuppbótin er nú greidd þann 1. júní ár hvert og viðmiðunartímabilið telur nú 52 vikur í stað 45 áður. Orlofstaka er þvi nú talin með. Orlofsuppbótin fyrir orlofs-árið 2009 er kr. 25.200 fyrir flestar starfsgreinar, þ.m.t. rafiðnaðar-menn. Verslunarmenn fá greiddar kr. 19.000.
8.5.2009
Eru rafmagnsbílar raunhæfur kostur eða tískubóla ?
Næsti morgunverðarfundur SART verður fimmtudaginn 14. maí nk. kl. 08:45-10:00 í Borgartúni 35, 6. hæð. Viðfangsefnið eru rafmagnsbílar og möguleikar þeirra. Ásgeir Þorsteinsson mun fjalla um mismunandi útfærslur rafbíla, líklega notkun þeirra í framtíðinni og tölvubúnað í nútímabílum og næstu framtíð.
7.5.2009
Atvinnulausir rafiðnaðarmenn um síðustu mánaðarmót !
Samkvæmt upplýsingum sem RSÍ hefur frá Vinnumálastofnun voru rúmlega 340 rafiðnaðarmenn atvinnulausir um mánaðarmótin apríl-maí. Þar af voru 124 rafvirkjar og 43 rafeindavirkjar.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













