Fréttir
19.1.2009
Upplýsingavefur á ensku um efnahagsástandið á Íslandi
Stjórnvöld hafa sett á fót upplýsingavef á ensku vegna efnahagsástandsins á Íslandi. Þar verða aðgengilegar upplýsingar um viðbrögð við því ástandi sem skapast hefur og aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til. Markmiðið er að á vefnum geti fólk fengið heildstæðar upplýsingar á ensku um efnahagsvandann og úrræði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Nánar hér
17.1.2009
Staðgreiðsla 2009
Skatthlutfall í staðgreiðslu árið 2009 er 37,2%. Persónuafsláttur ársins 2009 er 506.466,- kr. eða 42.205,- kr. á mánuði. Tryggingargjald og fl. til staðgreiðslu er 5,34%. Sjá nánar orðsendingu á vef RSK.
17.1.2009
Reiknað endurgjald óbreytt milli ára
Reiknað endurgjald tekjuársins 2009 verður óbreytt frá því sem það var tekjuárið 2008. Reglur nr. 1211/2008 um reiknað endurgjald á tekjuárinu 2009 eru birtar í B-deild stjórnartíðinda 31. desember 2008, en í þeim er að finna þær lágmarksfjárhæðir sem gilda um hvern flokk. Sjá nánar orðsendingu á vef RSK
17.1.2009
Atvinnuleysi í rafiðnaði minnkaði í desember.
Samkvæmt skrá Vinnumálastofnunar voru atvinnulausir rafiðnaðarmenn um áramótin alls 62 og skiptust þannig: Rafvirkjar 22, rafeindavirkjar 10, símsmiðir 2, tæknifólk 24 og nemar 6. Atvinnulausum rafiðnaðarmönnum fækkaði því um 9 frá fyrra mánuði og er fækkunin öll hjá rafvirkjum. Heimild: Vefur RSÍ
16.1.2009
Fjarskiptastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur
Umdeildur rekstur á fjarskiptastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og þar með Línu.Nets á sínum tíma leiddu til stofnunar Gagnaveitu Reykjavíkur (GR). Gagnrýni Símans á rekstri og lánveitingum OR til GR leiddu síðan til úttektar sem nú liggur fyrir.
9.1.2009
Atvinnuleysisbætur sjálfstætt starfandi einstaklinga
Margir hafa samband við skrifstofu SART þessa dagana í leit að upplýsingum um atvinnuleysisbætur og atvinnuleysistryggingar. Menn eru mikið að velta fyrir sér stöðu sjálfstætt starfandi einstaklinga og einnig möguleikum á bótum fyrir fólk í hlutastarfi.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













