Beint á leiðarkerfi vefsins
Sart.is

Fréttir

28.12.2009

Af rafbylgjum og prjónakörlum......

Ekki sýndu prjónarnir enn að allt væri í lagi, nú vildi hann sjá "jarðtenginguna" á húsinu. Við fórum í kjallarann og ég sýndi honum spennujöfnunina. Þá sagði hann að ef við aftengdum jarðtenginguna milli heita og kalda vatnsins myndi mikið lagast en hann mætti ekki gera það, hann hefði ekki leyfi til þess, en þar sem ég væri rafvirki þá ættum við að prufa það og mæla svo.

22.12.2009

Dýr eru fátækra manna ráð ......

Ríkið hafnar óskum rafverktaka á útboðsmarkaði, um að komið verði til móts við þá vegna gengishruns íslensku krónunnar. „Þið getið farið með málið fyrir dómstóla ef ykkur sýnist svo", eru skilaboðin úr fjármálaráðuneytinu. „Dýr eru fátækra manna ráð" segir máltækið og það á svo sannarlega við í þessu máli.

14.12.2009

Íslenskt, einfalt og öruggt!

ReMake Electric er íslenskt nýsköpunar- og þróunarfyrirtæki með alþjóðlegar og einfaldar lausnir á vörnum og upplýsingum um rafmagnsnotkun.  Fyrirtækið hóf sögu sína fyrir u.þ.b. 4 árum með hugmyndum um nýja kynslóð raföryggisvara.  Hilmir Ingi Jónsson hóf þá vöruþróunar- og einkaleyfisumsóknarferli fyrir sjálfvör með innbyggðum álagsmælingum annars vegar og hins vegar jarðraðtengi með innbyggðum lekastraumsskynjara.  Hilmir Ingi stofnaði svo ReMake Electric í framhaldi árið 2009.

7.12.2009

205 atvinnulausir rafiðnaðarmenn í nóvember.

Þetta er nánast óbreytt staða frá síðustu mánuðum, eða tæp 4%. Í október fyrir ári var nánast ekkert atvinnuleysi í rafiðnað og hafði ekki verið um árabil, þrátt fyrir að erlendir rafiðnaðar-menn hefðu verið nálægt 400 hér á landi þegar flest var. Í nóvember 2008 eru skyndilega komnir 62 á atvinnuleysisskrá, það jókst síðan jafnt og þétt upp 340 í mars og var síðan stöðugt í þeirri tölu þar til í júni, þá fór að fækka á skránni og fór niður í liðlega 200 og hefur staðið þar síðan.

4.12.2009

Ný sköpun á skjánum, jólaráðstefna Ský

Jólaráðstefna Ský verður haldin á Grand Hótel þriðjudaginn  8. desember kl. 13:00-17:00. Eftir ráðstefnuna verður "happy hour networking" tilboð á barnum fyrir þá sem vilja staldra við og eiga notalega stund saman og skoða sýningarbása tæknifyrirtækjanna. Skráningar fara fram í gegnum heimasíðu félagsins www.sky.is

1.12.2009

Launabreytingar og desemberuppbót

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda gildi sínu til nóvemberloka 2010. Það þýðir að umsamdar launabreytingar koma til framkvæmda frá 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Í nóvember er annars vegar um að ræða 3,5% launaþróunartryggingu og hins vegar sérstaka hækkun lágmarkstaxta kjarasamninga. Þann 1. júní 2010 hækka laun um 2,5% en þá kemur einnig til sérstök hækkun lágmarkstaxta.

27.11.2009

Míla og Rafholt á Suðurnesjum í samstarf

Fyrirtækið Míla ehf., sem rekur fjarskiptanet allra landsmanna, hefur ákveðið að gera breytingar á starfsemi fyrirtækisins á Reykjanesi. Breytingarnar felast í því að samið hefur verið Rafholt ehf. um að vera þjónustuaðili á svæðinu. Frá og með næstu mánaðamótum mun Rafholt taka yfir þjónustu við viðskiptavini á viðkomandi svæði. Breytingin felur í sér að starfsmenn Mílu, þrír talsins,  færast til Rafholts. Þeir hafa margra ára reynslu af viðhaldi á fjarskiptakerfi Mílu á svæðinu og búa yfir mikilvægri þekkingu og reynslu á sviði fjarskipta.

24.11.2009

"Ranghugmyndir" Flóahrepps

Flóahreppur velur þá leið að hunsa lög og reglur varðandi útboð á raflögnum í viðbyggingu Flóaskóla. Rafverktakar fá viku til að skila inn „hugmyndum um heildarverð" verksins á grundvelli mjög takmarkaðra gagna. Ekki verður greitt fyrir innsendar hugmyndir og verkkaupi áskilur sér rétt til að taka eða hafna einstökum liðum.

17.11.2009

Lögleg þjónusta í heimabyggð

Rafverktakar hafa gegnum tíðina veitt fjölbreytta þjónustu, hver í sinni heimabyggð. Hagsæld hvers sveitafélags ræðst ekki síst af því að fyrirtækin hafi verkefni, geti viðhaldið störfum og þar með tekjum til samfélagsins. Nú þegar kreppir að er stjórnvöldum tíðrætt um að ráðast þurfi í mannaflsfrekar framkvæmdir í því skyni að sporna gegn yfirvofandi samdrætti í efnahagslífinu, en í því felst ákveðin þversögn.

16.11.2009

Öryggistrúnaðarmenn og áhættumat starfa

Virkt vinnuverndarstarf í fyrirtækjum er hornsteinn forvarna gegn vinnuslysum og atvinnutengdum sjúkdómum. Það stuðlar einnig að vellíðan í vinnu og bættum hag fyrirtækjanna.

30.10.2009

Til hamingju Árni Bergamann ....

Árni Bergmann Pétursson, rafverktaki og hugvitsmaður hjá Raf ehf. á Akureyri, hlaut í dag Umhverfisverðlaun LÍÚ 2009 fyrir fyrir rannsóknar- og þróunarvinnu við svokallaða rafbjögunarsíu. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, afhenti Árna verðlaunin á aðalfundi LÍÚ í dag.

30.10.2009

Launabreytingar 1. nóvember 2009 skv. kjarasamningi RSÍ/SART-SA

Hinn 1. nóvember 2009 skulu laun starfsmanns breytast svo:  Grunnhækkun launa er 3,5%. Frá henni dragast hækkanir á launum starfsmanns frá og með 1. janúar 2009 til og með 1. nóvember 2009, þ.m.t. vegna hækkunar kauptaxta. Frádráttur getur þó ekki orðið hærri en grunnhækkun. Við samanburð launa skal miða við föst viku- eða mánaðalaun að viðbættum föstum álags- eða aukagreiðslum hverju nafni sem þær nefnast. 

30.10.2009

Orlofshúsið - haust og vetur

Byrjað er að taka niður pantanir fyrir haust- og vetrarleigu í orlofshúsi SART, verð fyrir helgarleigu er kr. 12.500,- frá föstudegi til mánudags. nánari upplýsingar á skrifstofu SART, sími 591-0150  eða anna@sart.is.

29.10.2009

Byggingarstjóri fundinn sekur um vanrækslu

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfur eigenda þriggja raðhúsa við Sóleyjarrima í Reykjavík um að byggingarstjóri húsanna hafi gerst sekur um vanrækslu og sé bótaskyldur. Var byggingar-stjórinn dæmdur til að greiða húseigendunum bætur, frá 670 þúsundum til 1,77 milljóna fyrir hvert hús. 

29.10.2009

Orkusala á hálum ís .....

„ Þú hefur fresli til að gera það sem þú vilt við rafmagnið frá okkur“ segir í auglýsingu frá Orkusölunni ehf. Ekki verður betur séð en að á þeim bæ þyki sjálfsagt að leiða rafmagnið um allar jarðir með lausasnúrum og lýsa upp sparkvelli með ljósgjöfum sem eingöngu eru ætlaðir til notkunar innanhúss.

16.10.2009

Opinn fundur um stöðugleikasáttmálann

Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar miðvikudaginn 21. október á Hótel Loftleiðum kl. 8:00-10:00.

13.10.2009

Endurmenntun til starfa á nýju sviði - Rafiðnaðarskólinn

Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins, sem starfar samkvæmt lögum um starfsmenntun í atvinnulífinu, nr. 19/1992, hefur úthlutað vegna ársins 2009 – aukaúthlutun – rúmlega 30 milljónir króna úr starfsmenntasjóði til 17 verkefna. Að þessu sinni var lögð áhersla á gæðaverkefni sem tengjast erfiðri stöðu á vinnumarkaði og nýtast þeim hópum sem misst hafa atvinnu eða eru í sérstakri áhættu með að missa vinnuna.  

1.10.2009

Evrópubrúin á morgunverðarfundi SART

Evrópubrúin ehf. er nýsköpunarfyrirtæki sem hefur það m.a. að markmiði að afla íslenskum verktökum verkefna í löndum Evrópska efnahagssvæðisins. Evrópubrúin verður á dagskrá morgunverðar-fundar SART, fimmtudaginn 8. október nk. í Borgartúni 35, 6. hæð
kl. 08:45-10:00.

22.9.2009

Hagtölur rafgreina - september 2009

Hagtölur rafgreina fyrir september 2009 eru komnar á vefinn. Hagtölurnar eru unnar fyrir SART á þriggja mánaða fresti. Tölurnar eru fyrir margt athygliverðar. Má þar nefna að velta rafverktaka í mars-apríl 2009 var 66,4% af veltu sömu mánuða ársins á undan. Síðustu tólf mánuði hækkaði miðgengi evru um 38,3%,  efniskostnaður  raflagna hækkaði um 24,3% á meðan byggingarvísitalan hækkaði aðeins um 11,5%.

21.9.2009

Haustferð FLR á Suðurnes ....

Haustferð Félags löggiltra rafverktaka verður farin föstudaginn
2. október nk. Að þessu sinni er ferðinni heitið á Suðurnes. Eldvörp, Reykjanesvirkjun og Brúin milli heimsálfa verða skoðuð undir dyggri leiðsögn frá Hitaveitu Suðurnesja. Þá eiga ferðalangar heimboð hjá Ískraft í Reykjanesbæ og snæða að lokum kvöldverð í Officer klúbbnum í boði Rafport.

15.9.2009

Sanngjarnir verkkaupar leiðrétta byggingarvísitöluna

Í maí sl. lækkaði byggingarvísitalan um 3,4 %, að mestu vegna breytinga á lögum um endurgreiðslu virðisaukaskatts, þar sem skatturinn af vinnu á byggingastað og þjónustu hönnuða og eftirlits-aðila er tímabundið endurgreiddur að fullu. Verktakar urðu strax mjög ósáttir við að vísitalan skuli hafa verið lækkuð á þennan hátt með stjórnvaldsaðgerð sem olli því að verðbætur voru lækkaðar sem nam 3,1% umfram það sem vísitalan var að mæla.

8.9.2009

Evrópubrúin aðstoðar við leit að verkefnum erlendis....

Evrópubrúin ehf. er nýsköpunarfyrirtæki sem hefur það að markmiði að afla íslenskum byggingahönnuðum og verktakafyrirtækjum fjölbreyttra verkefna í löndum Evrópska  efnahagssvæðisins. Fyrirtækið brúar þannig bil á milli íslenskra fyrirtækja og ábyrgra verkkaupa erlendis í því augnamiði að beina innlendri og ónýttri framleiðslugetu að erlendri eftirspurn. Bækistöðvar fyrirtækisins eru á Frumkvöðlasetri Nýsköp-unarmiðstöðvar Íslands að Keldnaholti í Reykjavík.

28.8.2009

ESB-hópar SA taka til starfa - hefur þú áhuga ?

Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að skipa sex starfshópa til að fjalla um málefni atvinnulífsins vegna aðildarumsóknar Íslands að ESB. Starfshóparnir eru opnir fulltrúum aðildarfélaga SA.

27.8.2009

Inflúensa - handþvottur mikilvægur

Sóttvarnalæknir hefur mælst til þess að fyrirtæki og stofnanir geri viðbragðsáætlun vegna yfirvofandi inflúensu heimsfaraldurs. Megin markmið með viðbragðsáætlun er að tefja útbreiðlsu faraldursins og draga úr alvarlegum afleiðingum sem hann kann að hafa á veikindi starfmanna og þar af leiðandi á starfsemi og rekstur.

26.8.2009

Atvinnuleysi í rafiðngreinum er 3,4%.

Í ágúst voru 220 atvinnulausir rafiðnaðarmenn á skrá, eða 3.4%.
Þar af voru 102 úr hópi tæknifólks, 77 rafvirkjar, 30 rafeindavirkjar, 5 símsmiðir, 5 nemar og 1 sýningarmaður. Flestir 
eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu og nokkrir eru í hlutastarfi. Atvinnuleysið í greininni er því svipað og það var í vor.

26.8.2009

Upplýsingar á ensku um stöðu mála á Íslandi

Samtök atvinnulífsins hafa tekið saman stutta en greinargóða samantekt á ensku um stöðu efnahagsmála á Íslandi og horfur í viðskiptalífinu. Aðildarfélög SA eru hvött til þess að koma upplýsing-unum á framfæri við erlenda samstarfsaðila og viðskiptavini. Samantektina má nálgast á vef SA og verður hún uppfærð reglulega eftir því sem tilefni gefast til.

26.8.2009

Rafiðnaðarskólinn - haustönn 2009

Nú líður að því að haustönn Rafiðnaðarskólans hefjist. Námsskrá er komin inn á vef skólans og eru menn hvattir til að skrá sig sem fyrst, til að tryggja sér þátttöku. Fyrsta námskeiðið byrjar 10.september næst-komandi. Námsvísir haustannar ´09 verður sendur til félagsmanna RSÍ og SART um mánaðarmótin.

15.7.2009

Báðir aðilar hafa samþykkt samkomulagið frá 25. júní 2009

7. júlí sl. sendu Samtök atvinnulífsins ASÍ tilkynningu um að fram-kvæmdastjórn samtakanna hefði samþykkt  samkomulag SA og samninganefndar ASÍ sem gert var 25. júní sl.  Alþýðusamband Ísland sendi SA í dag staðfestingu á samkomulaginu fyrir hönd samninga-nefndar ASÍ. Launahækkanir, eins og samið var um 25. júní sl., koma því til framkvæmdar frá og með síðustu mánaðamótum.

6.7.2009

Breytingar á reglum um staðgreiðslu af launum, tryggingagjaldi og fjármagnstekjum

Á upplýsingavef ríkisskattstjóra www.rsk.is er nú að finna orðsendingu vegna breytinga á reglum um staðgreiðslu af launum, tryggingagjaldi og fjármagnstekjum.

6.7.2009

Lágmarkslaun hækka - ný kaupgjaldskrá á vef SA

Kaupgjaldskrá nr.11 er komin á vef SA og gildir hún frá 1. júlí 2009. Kauptaxtar kjarasamninga hækka 1. júlí um kr. 6.750 hjá verkafólki og afgreiðslufólki en kr. 8.750 hjá iðnaðarmönnum og skrifstofufólki.

25.6.2009

Framlenging kjarasamninga við ASÍ – Stöðugleikasáttmáli

Kjarasamningar við Alþýðusambandið og aðildarfélög þess hafa verið framlengdir ásamt því að stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðarins, ríkisstjórnarinnar og sveitarfélaga hefur verið undirritaður.

28.5.2009

Rafmagnsöryggi til Brunamálastofnunar

Eins og áður hefur komið fram mun yfirstjórn rafmagnsöryggismála flytjast frá viðskiptaráðherra til umhverfisráðherra og dagleg fram-kvæmd málaflokksins frá Neytendastofu til Brunamálastofnunar þann 1. júní n.k.

25.5.2009

Gátlisti fyrirtækja vegna inflúensufaraldurs

Á vef SA má nálgast gátlista sem tekinn var saman fyrr á þessu ári af aðilum sem unnu að landsáætlun vegna viðbragða við alheims-inflúensu. Beinist listinn sérstaklega að fyrirtækjum og er ætlað styðja þau við gerð eigin viðbragðsáætlana vegna mannskæðra inflúensu-faraldra og fyrirbyggja að rekstur fyrirtækja rofni vegna þeirra. Eitt tilfelli inflúensu A (H1N1) hefur verið staðfest hér á landi.

19.5.2009

Office1 og SART semja um góð kjör......

SART og Office 1 Superstore hafa gert með sér samkomulag um sérstök viðskipta og afsláttarkjör til félagsmanna SART. Verslanir Office1 eru víða um land, Reykjavík, Hafnarfirði, Selfossi, Vestmanna-eyjum, Egilstöðum, Akureyri og Ísafirði. Auk þessa er Office1 með myndarlega netverslun og heimsendingarþjónustu.

15.5.2009

N1 og SART semja um vildarkjör fyrir rafverktaka

N1 og SART hafa gert með sér samkomulag um viðskipta- og afsláttakjör til allra starfsmanna þeirra fyrirtækja sem tilheyra SART. N1 býður jafnframt fyrirtækjunum upp á samning um sérstök vildarkjör, allt eftir stærð og umfangi fyrirtækjanna.   

14.5.2009

Orlofsuppbót 2009

Ákvæði kjarasamninga um orlofsuppbót voru einfölduð í kjara-samningum 2008. Helstu breytingar voru þær að orlofsuppbótin er nú greidd þann 1. júní ár hvert og viðmiðunartímabilið telur nú 52 vikur í stað 45 áður. Orlofstaka er þvi nú talin með. Orlofsuppbótin fyrir orlofs-árið 2009 er kr. 25.200 fyrir flestar starfsgreinar, þ.m.t. rafiðnaðar-menn. Verslunarmenn fá greiddar kr. 19.000.

8.5.2009

Eru rafmagnsbílar raunhæfur kostur eða tískubóla ?

Næsti morgunverðarfundur SART verður fimmtudaginn 14. maí nk. kl. 08:45-10:00 í Borgartúni 35, 6. hæð. Viðfangsefnið eru rafmagnsbílar og möguleikar þeirra. Ásgeir Þorsteinsson mun fjalla um mismunandi útfærslur rafbíla, líklega notkun þeirra í framtíðinni og tölvubúnað í nútímabílum og næstu framtíð.

7.5.2009

Atvinnulausir rafiðnaðarmenn um síðustu mánaðarmót !

Samkvæmt upplýsingum sem RSÍ hefur frá Vinnumálastofnun voru rúmlega 340 rafiðnaðarmenn atvinnulausir um mánaðarmótin apríl-maí. Þar af voru 124 rafvirkjar og 43 rafeindavirkjar.

30.4.2009

Rafmagnsöryggismál flytjast til Brunamálastofnunar.

Skv. ákvörðun Alþingis, sbr. ný samþykkt lög nr. 29/2009, mun yfirstjórn rafmagnsöryggismála flytjast frá viðskiptaráðherra til umhverfis-ráðherra og dagleg framkvæmd málaflokksins frá Neytendastofu til Brunamálastofnunar. Lögin hafa þegar tekið gildi en sjálf yfirfærslan, þ.e. flutningur þeirra starfsmanna sem sinnt hafa þessum málaflokki, frá Neytendastofu til Brunamálastofnunar fer fram 1. júní n.k.

21.4.2009

Rafstaðlaráð gefur út Tæknireglur um fjarskiptalagnir, TS-151

Að frumkvæði félaga og fyrirtækja á Íslandi sem eiga hagsmuna að gæta á sviði fjarskiptalagna var árið 2003 efnt til samstarfs um að koma upp vinnureglum varðandi þessi tækni- og við­skiptamál tengd fyrrnefndum kerfum. Undir Tæknireglur um fjarskiptalagnir í íbúðar-húsnæði heyra loftnetskerfi, netkerfi, símakerfi og hússtjórnarkerfi. 

28.3.2009

Jóhann Ólafsson & Co. býður SART félögum OSRAM - vildarkjör

SART og Jóhann Ólafsson & Co. hafa gert með sér samkomulag um sérstök vildarkjör fyrir félagsmenn SART. Félagsmenn SART fá fastan afslátt af öllum OSRAM vörum hjá Lýsingarsviði Jóhanns Ólafssonar & Co. Sundaborg 9-11 Reykjavík.

28.3.2009

Rafmagnsöryggis-sviðið flutt til Brunamálastofnunar.

Alþingi samþykkti í vikunni lög um flutning á Rafmagnsöryggissviði Neytendastofu til Brunamálastofnunar. Í umsögn sinni til Alþingis mælti SART með þessari breytingu hvort heldur sem hún væri til framtíðar eða sem millilending á leiðinni í fyrirhugaða Byggingar-stofnun. Það var mat SART að staða rafmagsöryggis-sviðsins innan Neytendastofu væri með öllu óviðunandi.

28.3.2009

Viðhald eigna á Álftanesi - útboð / raflagnir

Tilboð í viðhald eigna Sveitafélagsins Álftaness voru opnuð þriðjudaginn 17. mars s.l. Óvenju mörg fyrirtæki skiluðu inn tilboði og athygli vakti hversu mörg fyrirtæki utan rafmagnsgeirans buðu í rafmagnspakkann.

18.3.2009

Ný námskrá í rafiðngreinum

Ný aðalnámskrá í rafiðngreinum hefur tekið gildi með birtingu auglýs-ingar nr. 43/2009 í Stjórnartíðindum. Jafnframt hefur námskráin verið birt á vefsvæði ráðuneytisins.

18.3.2009

Ný námskrá fyrir iðnmeistaranám í rafveituvirkjun

Ný námskrá fyrir iðnmeistaranám í rafveituvirkjun hefur tekið gildi með birtingu auglýsingar nr. 4/2009 í Stjórnartíðindum. Jafnframt hefur námskráin verið birt á vefsvæði ráðuneytisins.

18.3.2009

Hugmyndabankinn

Hugmyndabankinn er ekki ríkisbanki og hann er opinn allan sólar-hringinn á vef SART. Ef þú lumar á hugmynd, komdu henni þá á framfæri. 

16.3.2009

Vafasamir rafvirkjar á barnalandi

Vert er að benda fólki á að athuga vel sinn gang áður en teknar eru ákvarðanir um að eiga viðskipti við "rafvirkja" sem auglýsa á barna-landi Morgunblaðsins. Oftar en ekki eru þetta aðilar sem hafa tak-markaða kunnáttu og hafa ekki réttindi til að selja þjónustu sína á rafmagnssviði.

15.3.2009

Lög um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingastað

Þann 6. mars sl. samþykkti Alþingi lög þess efnis að á tímabilinu
1. mars 2009 til 1. janúar 2011 skal endurgreiða byggjendum íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis 100% þess virðisaukaskatts sem þeir hafa greitt af vinnu manna á byggingarstað. Jafnframt skal á sama tímabili endurgreiða eigendum íbúðarhúsnæðis og frístunda-húsnæðis 100% þess virðisaukaskatts sem þeir hafa greitt af vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess.

10.3.2009

Nýjir félagsmenn aðildarfélaga SART.

Frá því í mars 2008 hafa níu fyrirtæki gengið til liðs við samtökin og eru þau hér með boðin velkomin af SART- fréttum.

10.3.2009

Siggi Harðar leitar að gömlum talstöðvum .......

Siggi Harðar er að aðstoða við uppsetningu á fjarskiptatækja-safni í Samgöngusafninu á Skógum undir Eyjafjöllum. Hann leitar nú að gömlum talstöðvum ....

9.3.2009

Aðalfundur SART - formaður, stjórn og framkvæmdastjórn

Á aðalfundi SART sem haldinn var á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 6. mars sl. var Jens Pétur Jóhannsson endurkjörinn formaður samtakanna til næstu tveggja ára.

7.3.2009

Hagtölur rafgreina

SART hefur samið við Rannsóknarsetur verslunarinnar um að vinna fyrir samtökin hagtölur rafgreina. Ársfjórðungslega munu birtast á vef SART upplýsingar um þróun á kostnaði við raflagnir, bæði í fjölbýlis- og iðnaðarhúsnæði ásamt þróun á vísitölu efniskostnaðar miðað við byggingarvísitölu og miðgengi EVRU.

6.3.2009

Fyrirtæki í rekstri eru undirstaða þess að heimilin komist af.

Aðalfundur SART-Samtaka atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði haldinn á Grand Hótel Reykjavík, föstudaginn 6. mars skorar á stjórnvöld að hrinda nú þegar í framkvæmd þeim aðgerðum sem þarf til bjargar heimilum og fyrirtækum í landinu.

4.3.2009

Útboð á raflögnum í Brúarland, Mosfellsbæ

Þriðjudaginn 24 febrúar 2009 kl 10:45 voru opnuð tilboð í raflagnir í Brúarlandshúsi í Mosfellsbæ.

3.3.2009

Nýsköpun, orkunýting og tækni - opinn fundur

Opinn fundur verður á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 6. mars nk. kl .13:30. Þorsteinn Ingi Sigfússon, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Albert Albertsson, HS Orku hf. fjalla um nýsköpun, orkunýtingu og tækni.
Fyrirlestur Þorsteins: EXERGY - NÝJA TÖFRAORÐIÐ Í ORKUMÁLUM
Fyrirlestur Alberts: FRAMTÍР HÁHITAVINNSLU  HS ORKU
hf.

2.3.2009

Löggiltar iðngreinar eiga í vök að verjast þrátt fyrir styrkar stoðir í lögum.

Löggiltar iðngreinar eru varðar með lögum. Þrátt fyrir það eru alltaf til réttindalausir menn á markaðnum sem auglýsa og taka að sér verkefni á sviði löggiltra iðngreina og komast upp með það. Oftast er eina lausnin að kæra slík mál til lögreglu þar sem málin fá sjaldnast forgang og daga því uppi. Segja má að starfsemi löggiltra rafverktaka sé varin af a.m.k. fjórum lögum og ekki minna en tveimur reglugerð-um, minna má það ekki vera.

1.3.2009

Aðalfundur SART, 6. mars á Grand Hótel Reykjavík

Aðalfundur SART- Samtaka atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði verður haldinn á Grand Hótel, Reykjavík, föstudaginn 6. mars nk. 
Fundurinn hefst kl. 10:00 árdegis með aðalfundarstörfum. Að venju verður hádegisverður í boði Reykjafells, Rönning og Smith & Norland. 
Kl. 13:30 verður fundi fram haldið þar sem viðfangsefnið verður: NÝSKÖPUN, ORKUNÝTING OG TÆKNI.
Fyrirlesarar eru Þorsteinn Ingi Sigfússon, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Albert Albertsson, HS Orku hf.
Fyrirlestur Þorsteins: EXERGY - NÝJA TÖFRAORÐIÐ Í ORKUMÁLUM
Fyrirlestur Alberts: FRAMTÍР HÁHITAVINNSLU  HS ORKU hf.

28.2.2009

Raflagnastaðallinn ÍST 200:2006

Fyrsta námskeið í raflagnastaðlinum ÍST 200:2006 verður haldið í Rafiðnaðarskólanum 13. mars nk. Þetta er dags-námskeið sem verður síðan endurtekið eftir þörfum, hvort sem er í Rafiðnaðar-skólanum eða út á landi meðan næg þátttaka fæst.

26.2.2009

Samið um frestun launahækkana

Samkomulag hefur náðst milli SA og ASÍ um frestun fyrirhugaðra launahækkana 1. mars en ákveðið var að fresta ákvörðun um endur-skoðun kjarasamninga um allt að fjóra mánuði. Samningsaðilar telja að þessi frestun sé mikilvægt framlag til stöðugleika í efnahagslífinu. Þannig geti skapast aðstæður til þess að hratt dragi úr verðbólgu og vextir geti lækkað. Í sameiginlegum áherslum SA og ASÍ segir að á næstu dögum og vikum þurfi að grípa til margvíslegra aðgerða til þess að verja hag heimilanna og fjölga störfum.
Sjá nánar á vef SA

26.2.2009

Gölluð vara, hver borgar brúsann?

Efnissala hefur alla tíð verið hluti af starfsemi rafverktaka. Í flestum tilfellum kaupa rafverktakar efnið/hlutinn í heildsölu hjá innflytjendum og endurselja síðan til sinna viðskiptavina/verkkaupa. Vaknað hafa spurningar um hvaða lög/reglur gildi þegar viðskiptavinir standa uppi með gallaða vöru.

26.2.2009

Lög um þjónustukaup - krafa um fagþekkingu og löglega starfsemi

Útseld þjónusta, sem veitt er í atvinnuskyni, skal ávallt vera byggð á fagþekkingu og í samræmi við góða viðskiptahætti. Seljandi þjónustu skal gæta þess að hún sé í samræmi við almennar reglur, staðla, reglur sem stjórnvöld setja, stjórnvaldsákvarðanir og lög sem gilda um veitta þjónustu í þeim tilgangi að vernda öryggi neytenda.

19.2.2009

Fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir 52 milljarða

Heildarupphæð fyrirhugaðra fram­kvæmda opinberra aðila verður rúm­­lega 50 milljarðar króna á þessu ári. Um 60% samdráttur er á framkvæmdum miðað við síðasta ár þegar upphæðin var 130 milljarðar og aukning um 24% frá fyrra ári. Þetta kom fram á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins 13. febrúar síðastliðinn.
Sjá nánar á vef SI

19.2.2009

Raf- og raftækjaúrgangur

SART efndi til kynningarfundar fyrir félagsmenn um förgun raf- og rafeindatækjaúrgangs fimmtudaginn 12. febrúar sl. í Borgartúni 35.  Alþingi samþykkti lög um þetta í lok maí á síðasta ári og er með þeim lögð ábyrgð á herðar innflytjendum og framleiðendum raf- og rafeinda-tækja, s.k. framleiðendaábyrgð, að bera fjárhags- og framkvæmdalega ábyrgð á förgun raftækjaúrgangs sem skila má án endurgjalds á söfn-unarstöðvar sveitarfélaga um allt landið. 

12.2.2009

Tilboð í raflagnir Krikaskóla opnuð

Tilboð í raflagnir Krikaskóla voru opnuð 10. febrúar sl. Kostnaðaráætlun var kr. 97.500.000,-. Alls buðu níu fyrirtæki í verkið og var lægsta tilboð kr. 64.637.461,-

12.2.2009

Atvinnulífið vill berjast

Ný könnun SA meðal aðildarfyrirtækja sinna leiðir í ljós að íslensk fyrirtæki vilja berjast áfram og ekki gefast upp þrátt fyrir erfið starfs-skilyrði. Því skiptir höfuðmáli að stjórnvöld hlusti á atvinnulífið og skapi því starfs-skilyrði sem efla baráttuvilja og þor til þess að takast á við erfiðleikana.

11.2.2009

Endurgreiðsla virðisaukaskatts - hvatnig til framkvæmda

Vonast er til að tímabundin aukning endurgreiðslna virðisaukaskatts til bygginga og viðhalds íbúðarhúsnæðis hvetji til framkvæmda. Auk þess er tilgangurinn að sporna við svartri atvinnustarfsemi.

10.2.2009

Iðnaðarmannafélagið heiðrar iðnsveina og meistara

Laugardaginn 7. febrúar sl. efndi Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík til árlegrar hátíðar í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem félagið heiðraði nýsveina sem lokið hafa prófi með afbragðs árangri auk þess sem kynnt var niðurstaða úr kjöri heiðursiðnaðarmanns ársins.

3.2.2009

Um eignarréttarfyrirvara

Í því ástandi sem nú ríkir á markaðnum velta menn fyrir sér hvaða úrræðum hægt sé að beita gagnvart verkkaupa sem ekki stendur í skilum og jafnvel stefnir í gjaldþrot. Í byggingarbransanum er efni oftast stór partur af því sem tapast þegar illa fer og því er spurt hvort eignarréttarfyrirvari sé haldbært úrræði ?

2.2.2009

Skráð atvinnuleysi rafiðnaðarmanna

Skráð atvinnuleysi rafiðnaðarmanna hefur tvöfaldast frá miðjum desember og er staðan þessi: Rafvirkjar 38, rafeindavirkjar 20, símsmiðir 5, tæknifólk 53 og rafiðnnemar 4.

2.2.2009

Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á virðisaukaskatti

Vegna áframhaldandi truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið telur fjármálaráðuneytið að gildar ástæður séu til að fella tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti fyrir uppgjörstímabilið nóvember og desember 2008.

2.2.2009

Samtök atvinnulífsins heimsækja vinnustaði

Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins heimsækja aðildarfyrirtæki SA þessa dagana og kynna nýja atvinnustefnu samtakanna sem nýverið kom út. Stjórnendur sem vilja fá Samtök atvinnulífsins í heimsókn til að kynna starfsmönnum sýn SA á hvernig snúa skuli vörn í sókn er velkomið að hafa samband til að finna hentugan tíma.

19.1.2009

Upplýsingavefur á ensku um efnahagsástandið á Íslandi

Stjórnvöld hafa sett á fót upplýsingavef á ensku vegna efnahagsástandsins á Íslandi. Þar verða aðgengilegar upplýsingar um viðbrögð við því ástandi sem skapast hefur og aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til. Markmiðið er að á vefnum geti fólk fengið heildstæðar upplýsingar á ensku um efnahagsvandann og úrræði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Nánar hér

17.1.2009

Staðgreiðsla 2009

Skatthlutfall í staðgreiðslu árið 2009 er 37,2%. Persónuafsláttur ársins 2009 er 506.466,- kr. eða 42.205,- kr. á mánuði. Tryggingargjald og fl. til staðgreiðslu er 5,34%. Sjá nánar orðsendingu á vef RSK.

17.1.2009

Reiknað endurgjald óbreytt milli ára

Reiknað endurgjald tekjuársins 2009 verður óbreytt frá því sem það var tekjuárið 2008. Reglur nr. 1211/2008 um reiknað endurgjald á tekjuárinu 2009 eru birtar í B-deild stjórnartíðinda 31. desember 2008, en í þeim er að finna þær lágmarksfjárhæðir sem gilda um hvern flokk. Sjá nánar orðsendingu á vef RSK

17.1.2009

Atvinnuleysi í rafiðnaði minnkaði í desember.

Samkvæmt skrá Vinnumálastofnunar voru atvinnulausir rafiðnaðarmenn um áramótin alls 62 og skiptust þannig: Rafvirkjar 22, rafeindavirkjar 10, símsmiðir 2, tæknifólk 24 og nemar 6. Atvinnulausum rafiðnaðarmönnum fækkaði því um 9 frá fyrra mánuði og er fækkunin öll hjá rafvirkjum. Heimild: Vefur RSÍ

16.1.2009

Fjarskiptastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur

Umdeildur rekstur á fjarskiptastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og þar með Línu.Nets á sínum tíma leiddu til stofnunar Gagnaveitu Reykjavíkur (GR). Gagnrýni Símans á rekstri og lánveitingum OR til GR leiddu síðan til úttektar sem nú liggur fyrir.

9.1.2009

Atvinnuleysisbætur sjálfstætt starfandi einstaklinga

Margir hafa samband við skrifstofu SART þessa dagana í leit að upplýsingum um atvinnuleysisbætur og atvinnuleysistryggingar. Menn eru mikið að velta fyrir sér stöðu sjálfstætt starfandi einstaklinga og einnig möguleikum á bótum fyrir fólk í hlutastarfi. 


Samstarfsaðilar

Smelltu á mynd til að fara á vef

Sa til hægri
mannvirkjastofnun
Mannvirkjastofnun
Rafiðnaðarskólinn
Fræðsluskrifstofa
Rafiðnarasambandið
Rafbók
Ákvæðisvinnustofa 
Stafir til hægri

Öryggi fagmennska

Slóðin þín:

Fréttir

Toppmynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Veftré