Fréttir
13.4.2008
ÍST 30 í endurskoðun - athugasemdir óskast
Verið er að endurskoða ÍST 30, Almenna útboðs- og samnings-skilmála um verkframkvæmdir. Óskað er eftir athugasemdum frá félagsmönnum SART. Hafi menn ábendingar um lagfæringar eða breytingar vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna í síma
591-0150 eða sendið tölvupóst á asbjorn@sart.is
11.4.2008
Fjölsóttur morgunverðarfundur
Mæting var góð á morgunverðarfund FLR og SART sem haldinn var fimmtudaginn 10. apríl sl. en þar fjallaði m.a. Árni Jóhannsson viðskiptafræðingur og starfsmaður SI um ÍST-30, Almenna útboðs- og samningsskilmála um verklegar framkvæmdir. Talsverðar umræður urðu um stöðu efnahagsmála og nauðsyn þess að taka að nýju upp ákvæði um verðbætur í verksamningum.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













