Beint á leiðarkerfi vefsins
Sart.is

Fréttir

12.3.2008

SART skorar á Gagnaveitu Reykjavíkur

Aðalfundur SART haldinn á Grand Hótel Reykjavík, þann 7. mars 2008 skorar á Gagnaveitu Reykjavíkur að halda verkefnum sínum sem mest á markaði, með opnum útboðum eins og verið hefur frá upphafi.

12.3.2008

Aðalfundur SART 2008, skýrsla formanns

Við þær aðstæður sem nú ríkja í þjóðfélaginu kemur hvað best í ljós hversu mikilvægt það er að við stöndum vel að rafiðnaðarnáminu þannig að atvinnulífið eigi árlega kost á mörgum nýjum og góðum sveinum. Það er því mikið gleðiefni, sá mikli fjöldi rafiðnaðarnema sem þreytt hafa sveinspróf síðustu misseri sagði Jens Pétur Jóhannsson formaður SART, í skýrslu sinn á aðalfundi SART.

12.3.2008

Staða rafverktaka fyrr og nú, frá aðalfundi SART

Rafverktakar muna tímana tvenna þegar kemur að starfsréttindum þeirra og starfsumhverfi. Sú var tíðin að Rafmagnseftirlit ríkisins veitti rafvirkjameisturum landslöggildingu, löggildingu sem veitti þeim þó engin starfsréttindi í raun. Í þá daga gat rafverktaki úr Reykjavík ekki tekið að sér verkefni upp á Skaga öðru vísi en að tilkynna sig inn til Rafveitu Akraness. Það sama gilti um Skagamanninn sem vildi vinna í Reykjavík, þar sem Rafmangsveita Reykjavíkur réð ríkjum.

12.3.2008

Stjórn SART kjörin á aðalfundi

Á aðalfundi SART var kjörin ný stjórn til eins árs, sem síðan skipaði framkvæmdastjórn.
Sjá nánar

12.3.2008

RSÍ samþykkir kjarasamningana

Kjörfundi er lokið hjá RSÍ.  Á kjörskrá voru 2930, atkvæði greiddu 476 eða 16,25%. Samningurinn var samþykktur með 70,8% atkvæða.
Sjá nánar á vef RSÍ

7.3.2008

Ályktun aðalfundar SART, 2008

Aðalfundur SART, Samtaka atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði sem haldinn er á Grand Hótel Reykjavík þann 7. mars 2008, samþykkir eftirfarandi ályktun:

3.3.2008

Atkvæðagreiðsla SA um nýja kjarasamninga 3.-7. mars

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýja kjarasamninga sem Samtök atvinnulífsins undirrituðu við meginþorra stéttarfélaga innan ASÍ 17. febrúar er hafin meðal aðildarfyrirtækja SA. Á grundvelli samþykkta SA ákvað framkvæmdastjórn samtakanna að greiða skyldi atkvæði um samningana dagana 3.-7. mars. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar.

2.3.2008

Nauðsynlegt að framkvæma samningana rétt

Mikilvægt er að fyrirtæki geri ekki aðrar launabreytingar nú en þær sem ákveðnar eru með samningunum og bíði þangað til áhrif samning-anna hafa komið fram. Fyrirsjáanlegt er að það hægir á efnahagslífinu og fyrirtæki verða að vanda vel til ákvarðana sem hafa áhrif á rekstrarlega stöðu þeirra. Með réttri framkvæmd kjarasamninganna og framlagi stjórnvalda eru góðar horfur á að starfsskilyrði atvinnulífsins batni, vextir lækki, verðbólga minnki og raunverulegar kjarabætur verði tryggðar.


Samstarfsaðilar

Smelltu á mynd til að fara á vef

Sa til hægri
mannvirkjastofnun
Mannvirkjastofnun
Rafiðnaðarskólinn
Fræðsluskrifstofa
Rafiðnarasambandið
Rafbók
Ákvæðisvinnustofa 
Stafir til hægri

Öryggi fagmennska

Slóðin þín:

Fréttir

Toppmynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Veftré