Fréttir
26.2.2008
Leiðbeinandi launatöflur frá 1. febrúar 2008
Leiðbeinandi launatöflur sem gilda frá 1. febrúar 2008 hafa verið settar á innra net SART. Þá hafa þær einnig verið sendar í tölvupósti til félagsmanna. Við minnum jafnframt á vef Samtaka atvinnulífsins þar sem finna má kjarasamningana í heild sinni ásamt upplýsingum um lágmarks laun og lágmarks taxta. Nánari upplýsingar gefur skrifstofa SART.
19.2.2008
Óvönduð framsetning RSÍ vegna samkomulags um línuna
Ein af kröfum RSÍ í nýliðnum kjaraviðræðum var að rafiðnaðarmenn fengju greiddan ferðakostnað væri þeim gert að mæta á annan stað en verkstæði í upphafi vinnudags. Á þetta var ekki fallist, en samkomu-lag náðist um aðra nálgun. Á heimasíðu sinni mánudaginn 18. janúar sl. lætur RSÍ sem að krafa þeirra hafi verið samþykkt, sem er í besta falli tilefni til leiðinda og misskilnings.
18.2.2008
Helstu ákvæði og breytingar Kjarasamnings SA/SART og RSÍ
Síðast gildandi kjarasamningar Samtaka atvinnulífsins og aðildar-fyrirtækja annars vegar og Rafiðnaðarsambands Íslands vegna aðildarfélaga hins vegar framlengist til 30.nóvember árið 2010 með þeim breytingum og fyrirvörum sem í samningnum felast og falla þá úr gildi án sérstakrar uppsagnar. Samningur þessi gildir frá 1. febrúar 2008.
17.2.2008
Kjarasamningar
Í kjarasamningunum sem undirritaðir voru 17. febrúar hækkuðu kauptaxtar verkafólks um 18 þúsund krónur á mánuði og iðnaðarmanna um 21 þúsund krónur á mánuði. Samningarnir fela í sér launaþróunartryggingu sem er 5,5%, sem virkar þannig að hafi laun ekki hækkað sem því nemur frá 2. janúar 2007 hækka þau nú um það sem á vantar hjá þeim sem hafa verið í starfi þennan tíma. Laun sem hafa hækkað um 5,5% eða meira hækka ekki nú. Í samningunum felast engar almennar flatar launahækkanir.
8.2.2008
Frumvarp til laga um mannvirki
Umhverfisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um mannvirki. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að rafmagnsöryggismál flytjist frá Neytendastofu til Byggingarstofnunar sem áætlað er að taki til starfa 1. júní nk. og hafa samtök rafverktaka áður lýst stuðningi við þær breytingar. Hins vegar eru samkvæmt frumvarpinu áform um að skipta málaflokknum "markaðseftirlit með rafföngum" upp í tvo hluta sem er gjörsamlega óskiljanlegt.
7.2.2008
Morgunverðarfundur FLR og SART
Næsti morgunverðarfundur FLR og SART verður haldinn fimmtu-daginn 14. febrúar nk. í Borgartúni 35, 6. hæð kl. 08:45 - 10:00. Að þessu sinni mun Jóhann Ólafsson sviðsstjóri rafmagnsöryggis-deildar Neytendastofu fjalla um nýjar reglur á rafmagnsöryggissviði - ÍST 200. Umræður og fyrirspurnir.
5.2.2008
Félag rafverktaka á Suðurlandi
Aðalfundur Félags rafverktaka á Suðurlandi verður haldinn á Hótel Selfossi föstudaginn 15. febrúar nk. kl. 17:00. Boðið verður til í kvöldverðar að loknum fundi. Fundarboð með dagskrá hefur verið sent félagsmönnum.
5.2.2008
Félag rafverktaka á Norðurlandi
Aðalfundur Félags rafverktaka á Norðurlandi verður haldinn á Hótel KEA, Akureyri föstudaginn 22. febrúar nk. kl. 16:00. Fundarmönnum ásamt mökum er boðið til kvöldverðar á sama stað kl. 20:00. Fundarboð með dagskrá hefur verið sent félagsmönnum.
4.2.2008
Styrkir vegna starfsmenntunar
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu. Skilafrestur umsókna er 28. febrúar 2008.
Sjá vefsíðu starfsmenntaráðs.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













