Fréttir
15.11.2007
Rafiðnaðarskólinn býður úrval STUTT-námskeiða
STUTT- námskeið er ný tegund námskeiða sem Rafiðnaðarskólinn býður nú á komandi haustönn. Eins og nafnið bendir til er um styttri námskeið að ræða en hin hefðbundnu þriggja daga fagnámskeið sem mest hafa verið í boði fram til þessa. STUTT-námskeiðin eru allt frá hálfum degi og upp í tvo daga. Hér er samt sem áður um vönduð fagnámskeið að ræða bæði bókleg og verkleg, þar sem metnaður er lagður í að skila þátttakendum góðri þekkingu á þeirri tækni sem fjallað er um hverju sinni. Leitast er við að fella tímalengd námskeiðs-ins að umfangi efnisins hverju sinni.
13.11.2007
Breytt skipan rafmagnsöryggismála ?
Stjórn SART, Samtaka atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði leggur áherslu á mikilvægi þess að öll starfsemi Rafmagnsöryggisdeildar Neytendastofu verði flutt til nýrrar stofnunar, Byggingarstofnunar eins og lagt hefur verið til í frumvarpi til laga um mannvirki. Þá varar stjórnin eindregið við þeim hugmyndum sem fram komu í tíð fyrri ríkisstjórnar þess efnis að skipta málaflokknum upp á milli ráðuneyta.
12.11.2007
Nýtt skilakerfi raftækja- og rafeindatækjaúrgangs
Framleiðendur og innflytjendur raftækja og rafeindatækja bera ábyrgð á og greiða fyrir söfnun og förgun úrsérgenginna raftækja og rafeindatækja eftir að ný tilskipun Evrópusambandsins um raftækja- og rafeindatækjaúrgang tekur gildi á næsta ári. Tilskipunin var kynnt á upplýsingafundi í Húsi atvinnulífsins en
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













