Fréttir
30.10.2007
Stuttnámskeið / Mælingar og skýrslugerð fyrir loftnetskerfi
Stuttnámskeið í þessari viku: Tímalengd 2 dagar (1.-2.nóvember).
Á fyrirtækið þitt fullkominn loftnetsmælir til lokaúttektar og skýrslugerðar? Eru þið starfsmennirnir klárir á að framkvæma sjálfvirkar mælingar með mælitækinu og skila lokaskýrslu með niðurstöðum mælinganna? Þetta tveggja daga námskeið þjálfar þátttakendur í að nýta sér sem flesta kosti mælitækisins.
27.10.2007
3G farsíminn - Kvöldfyrirlestur
Fyrirlestur um tæknina á bak við 3. kynslóðar farsímann. Síminn hóf rekstur á 3G farsímakerfi sl. haust, fyrst íslenskra fjarskiptafyrirtækja og hefur nú þegar skapað sér reynslu á þessu sviði. Sæmundur E. þorsteinsson forstöðumaður hjá Símanum mun kynna þessa nýju tækni í Rafiðnaðarskólanum miðvikudagskvöldið 31. október nk. kl. 20:00 - 22:00. Skráning á www.raf.is eða í síma 568-5010
26.10.2007
Afnotagjöld af útvörpum í atvinnubílum
Héraðsdómur Reykjaness hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Ríkisútvarpið hafi haft lögin sín megin þegar stofnunin innheimti afnotagjald af útvarpstækum í 18 rútum í eigu rútufyrirtækis í Hafnarfirði. Vonandi er bara hálfleikur í málinu og að það fari fyrir hæstarétt.
26.10.2007
Starfsmenntaverðlaun 2007 - óskað eftir tilnefningum
Óskað er eftir tilnefningum til Starfsmenntaverðlauna Starfsmennta-ráðs og Menntar fyrir 2. nóvember nk. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning fyrir aðila sem þykja vera að vinna framúrskarandi starf á sviðið starfsmenntunar.
17.10.2007
Rafiðnaðarskólinn á Egilsstöðum
Um síðustu helgi stóð Rafiðnaðarskólinn fyrir eftirmenntunar-námskeiði fyrir rafiðnaðarmenn á Egilsstöðum. Þetta var grunn-námskeið í loftnetstækni og var fyrst af fjórum námskeiðum sem áætlað er að halda á Egilstöðum á þessari skólaönn.
17.10.2007
Háskerpusjónvarp – Nýtt námskeið í Rafiðnaðarskólanum
Í dag hefjast í fyrsta sinn útsendingar á háskerpusjónvarpi á Íslandi. 365 Miðlar munu í dag hefja útsendingar á tveimur slíkum sjón-varpsrásum á höfuðborgarsvæðinu. Fljótlega hefjast sendingar einnig á Akureyri. Stafrænt háskerpusjónvarp er bylting í sjónvarpstækninni sem á eftir að hafa mikil áhrif í nánustu framtíð.
10.10.2007
Kjarasamningar - tillögur óskast
Aðilar vinnumarkaðarins undirbúa sig nú undir viðræður um nýja kjarasamninga. Félagsmenn SART eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu SART hafi þeir hugmyndir varðandi áherslur samtakanna í komandi kjaraviðræðum við RSÍ og eins ef menn hafa tillögur um tilteknar breytingar á kjarasamningi SA/SART og RSÍ.
5.10.2007
Nýr ákvæðisvinnutaxti kynntur á morgunverðarfundi
Næsti morgunverðarfundur FLR og SART verður haldinn í Borgartúni 35, 6. hæð, fimmtudaginn 11. október nk. kl. 08:45. Að þessu sinni mun Ólafur Sigurðsson forstöðumaður Ákvæðisvinnustofu kynna nýjan ákvæðisvinntaxta. Hann mun jafnframt kynna nýtt reikniforrit, en það liggur miðlægt á netinu sem auðveldar mjög aðgengi og alla notkun þess.
1.10.2007
169 rafiðnaðarmenn útskrifaðir á árinu
Hefðbundin útskriftarhátíð nema í rafiðnum var haldin laugardaginn 29. september sl. Að hátíðinni standa SART og RSÍ en í þetta sinn fengu 78 nemar afhent sveinsbréf. Alls hafa á árinu verið útskrifaðir 169 rafiðnaðarmenn, þar af 136 rafvirkjar, 32 rafeindavirkjar og 1 símsmiður. Aldrei fyrr hafa fleiri rafiðnaðarmenn verið útskrifaðir á einu og sama árinu og því ber að fagna, þar sem eftirspurn eftir rafiðnaðarmönnum er mjög mikil.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













