Beint á leiðarkerfi vefsins
Sart.is

Fréttir

18.12.2007

Breyting á reglugerð um raforkuvirki nr. 264/1971.

Neytendastofa vekur athygli á nýrri breytingu á reglugerð um raforkuvirki nr. 264/1971. Helstu breytingar eru þær að að kafli 2 Heiti og hugtök og kafli 3 Reglur um gerð, tilhögun og starfrækslu raforkuvirkja eru felldir niður. Þess í stað skulu háspennt raforkuvirki, háspenntar loftlínur, ásamt lágspenntum raforkuvirkjum (neysluveitum) og lágspenntum loftlínum uppfylla ákveðnar grunnkröfur sem tilgreindar eru í grein 1.10 í reglugerðinni, ásamt sérstökum öryggiskröfum sem tilgreindar eru í greinum 1.11, 1.12 og 1.13.

12.12.2007

Desemberuppbót rafiðnaðarmanna 2007

Starfsmenn sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sama fyrirtæki og eru við störf í fyrirtækinu síðustu viku í nóvember eða í fyrstu viku desember skulu eigi síðar en 15. desember fá greidda sérstaka eingreiðslu, desemberuppbót.

11.12.2007

Hvað er forstaðall ?

Staðlaráði er heimilt að gefa út íslenska forstaðla. Forstaðall (FS) er skjal sem inniheldur reglur eða leiðbeiningar og er ætlað til notkunar á svipaðan hátt og staðall. Forstaðall hefur takmarkaðan gildistíma, að hámarki þrjú ár, og skal koma fram á forsíðu forstaðalsins hver gildistími hans er.

11.12.2007

Launakönnun SART

Í launakönnun sem gerð var hjá SART fyrirtækjum í október kom fram að meðal tímakaup (taxtakaup) rafvirkja í dagvinnu er 1.523,- kr. Er niðurstaðan nálægt því hin sama og kom fram í síðustu launakönnun RSÍ. Meðal tímakaup (taxtakaup) nema og ófaglærðra í dagvinnu var 1.152,- kr.

10.12.2007

Forstaðall um boðskiptlagnir

Rafstaðlaráð hefur samþykkt að unnið verði að upptöku forstaðals á grunni “Leiðbeinandi tæknireglna um boðskiptalagnir”. Markmiðið er að koma skipulagi á hönnun, lagningu, frágang og prófanir á boð-skiptakerfum fyrir húsbyggingar. Þessi ákvörðun er mikil viðurkenning á því starfi sem hópur áhugasamra aðila hefur verið að vinna að á síðustu tveim árum.  

9.12.2007

Jóla - morgunverðarfundur FLR

Jóla-morgunverðarfundur FLR verður haldinn í Borgartúni 35, 6. hæð fimmtudaginn 13. desember nk. kl. 08:45 - 10:00. Að þessu sinni leggja menn tæknimálin til hliðar og snúa sér að mýkri málum. Þorgrímur þráinsson rithöfundur mætir á staðinn og les upp úr nýútkominni bók sinni " Hvernig gerirðu konuna þína hamingjusama".

7.12.2007

Ísat 2008

Þann 1. janúar 2008 tekur gildi ný atvinnugreinaflokkun á Íslandi, ÍSAT2008. Flokkunin er byggð á nýrri atvinnugreinaflokkun Evrópusambandsins, NACE Rev. 2,  sem mun gilda í öllum ríkjum evrópska efnahagssvæðisins frá 1. janúar 2008. Frá þeim tíma verður nýju flokkuninni beitt í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og í opinberri hagskýrslugerð af Hagstofu Íslands.

15.11.2007

Rafiðnaðarskólinn býður úrval STUTT-námskeiða

STUTT- námskeið er ný tegund námskeiða sem Rafiðnaðarskólinn býður nú á komandi haustönn. Eins og nafnið bendir til er um styttri námskeið að ræða en hin hefðbundnu þriggja daga fagnámskeið sem mest hafa verið í boði fram til þessa. STUTT-námskeiðin eru  allt frá hálfum degi og upp í tvo daga. Hér er samt sem áður um vönduð fagnámskeið að ræða bæði bókleg og verkleg, þar sem metnaður er lagður í að skila þátttakendum góðri þekkingu á þeirri tækni sem fjallað er um hverju sinni. Leitast er við að fella tímalengd námskeiðs-ins að umfangi efnisins hverju sinni.

13.11.2007

Breytt skipan rafmagnsöryggismála ?

Stjórn SART, Samtaka atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði leggur áherslu á mikilvægi þess að öll starfsemi Rafmagnsöryggisdeildar Neytendastofu verði flutt til nýrrar stofnunar, Byggingarstofnunar eins og lagt hefur verið til í frumvarpi til laga um mannvirki. Þá varar stjórnin eindregið við þeim hugmyndum sem fram komu í tíð fyrri ríkisstjórnar þess efnis að skipta málaflokknum upp á milli ráðuneyta.

12.11.2007

Nýtt skilakerfi raftækja- og rafeindatækjaúrgangs

Framleiðendur og innflytjendur raftækja og rafeindatækja bera ábyrgð á og greiða fyrir söfnun og förgun úrsérgenginna raftækja og rafeindatækja eftir að ný tilskipun Evrópusambandsins um raftækja- og rafeindatækjaúrgang tekur gildi á næsta ári. Tilskipunin var kynnt á upplýsingafundi í Húsi atvinnulífsins en Samtök atvinnulífsins, Félag íslenskra stórkaupmanna, Samtök iðnaðarins og SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu boðuðu til fundarins. Sjá nánar á vef SA

30.10.2007

Stuttnámskeið / Mælingar og skýrslugerð fyrir loftnetskerfi

Stuttnámskeið í þessari viku:  Tímalengd 2 dagar  (1.-2.nóvember).
Á fyrirtækið þitt fullkominn loftnetsmælir til lokaúttektar og skýrslugerðar? Eru þið starfsmennirnir klárir á að framkvæma sjálfvirkar mælingar með mælitækinu og skila lokaskýrslu með niðurstöðum mælinganna? Þetta tveggja daga námskeið þjálfar þátttakendur í að nýta sér sem flesta kosti mælitækisins.

27.10.2007

3G farsíminn - Kvöldfyrirlestur

Fyrirlestur um tæknina á bak við 3. kynslóðar farsímann. Síminn hóf rekstur á 3G farsímakerfi sl. haust, fyrst íslenskra fjarskiptafyrirtækja og hefur nú þegar skapað sér reynslu á þessu sviði. Sæmundur E. þorsteinsson forstöðumaður hjá Símanum mun kynna þessa nýju tækni í Rafiðnaðarskólanum miðvikudagskvöldið 31. október nk. kl. 20:00 - 22:00. Skráning á www.raf.is eða í síma 568-5010

26.10.2007

Afnotagjöld af útvörpum í atvinnubílum

Héraðsdómur Reykjaness hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Ríkisútvarpið hafi haft lögin sín megin þegar stofnunin innheimti afnotagjald af útvarpstækum í 18 rútum í eigu rútufyrirtækis í Hafnarfirði. Vonandi er bara hálfleikur í málinu og að það fari fyrir hæstarétt. 

26.10.2007

Starfsmenntaverðlaun 2007 - óskað eftir tilnefningum

Óskað er eftir tilnefningum til Starfsmenntaverðlauna Starfsmennta-ráðs og Menntar fyrir 2. nóvember nk. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning fyrir aðila sem þykja vera að vinna framúrskarandi starf á sviðið starfsmenntunar.

17.10.2007

Rafiðnaðarskólinn á Egilsstöðum

Um síðustu helgi stóð Rafiðnaðarskólinn fyrir eftirmenntunar-námskeiði fyrir rafiðnaðarmenn á Egilsstöðum. Þetta var grunn-námskeið í loftnetstækni og var fyrst af fjórum námskeiðum sem áætlað er að halda á Egilstöðum á þessari skólaönn.

17.10.2007

Háskerpusjónvarp – Nýtt námskeið í Rafiðnaðarskólanum

Í dag hefjast í fyrsta sinn útsendingar á háskerpusjónvarpi á Íslandi. 365 Miðlar munu í dag hefja útsendingar á tveimur slíkum sjón-varpsrásum á höfuðborgarsvæðinu. Fljótlega hefjast sendingar einnig á Akureyri. Stafrænt háskerpusjónvarp er bylting í sjónvarpstækninni sem á eftir að hafa mikil áhrif í nánustu framtíð.

10.10.2007

Kjarasamningar - tillögur óskast

Aðilar vinnumarkaðarins undirbúa sig nú undir viðræður um nýja kjarasamninga. Félagsmenn SART eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu SART hafi þeir hugmyndir varðandi áherslur samtakanna í komandi kjaraviðræðum við RSÍ og eins ef menn hafa tillögur um tilteknar breytingar á kjarasamningi SA/SART og RSÍ.

5.10.2007

Nýr ákvæðisvinnutaxti kynntur á morgunverðarfundi

Næsti morgunverðarfundur FLR og SART verður haldinn í Borgartúni 35, 6. hæð, fimmtudaginn 11. október nk. kl. 08:45. Að þessu sinni mun Ólafur Sigurðsson forstöðumaður Ákvæðisvinnustofu kynna nýjan ákvæðisvinntaxta. Hann mun jafnframt kynna nýtt reikniforrit, en það liggur miðlægt á netinu sem auðveldar mjög aðgengi og alla notkun þess.

1.10.2007

169 rafiðnaðarmenn útskrifaðir á árinu

Hefðbundin útskriftarhátíð nema í rafiðnum var haldin laugardaginn 29. september sl. Að hátíðinni standa SART og RSÍ en í þetta sinn fengu 78 nemar afhent sveinsbréf. Alls hafa á árinu verið útskrifaðir 169 rafiðnaðarmenn, þar af 136 rafvirkjar, 32 rafeindavirkjar og 1 símsmiður. Aldrei fyrr hafa fleiri rafiðnaðarmenn verið útskrifaðir á einu og sama árinu og því ber að fagna, þar sem eftirspurn eftir rafiðnaðarmönnum er mjög mikil.  

12.9.2007

Hart barist um rafvirkjana

Þensla á byggingamarkaði og skortur á rafvirkjum hefur orðið til þess að valda óróa í fyrirtækjunum og baráttan um starfsmenn tekur á sig ýmsar myndir. Dæmi eru um að rafvirkjar telji sig geta gengið út  án þess að virða uppsagnarfresti og í sumum tilfellum ganga fyrirtækin of langt í að yfirbjóða starfsmenn annara fyrirtækja. Í hita leiksins virðist það stundum gleymast að á vinnumarkaði gilda leikreglur, skráðar og óskráðar sem mönnum ber að virða.

10.9.2007

Það þarf tvo til

Félag löggiltra rafverktaka FLR, fagnar 80 ára afmæli um þessar mundir. Fimm framsýnir atvinnurekendur stofnuðu Félag rafvirkja-meistara í Reykjavík árið 1927. Ráðamenn Rafvirkjafélagsins gerðu sér fljótt grein fyrir mikilvægi þess að til væri öflugt félag atvinnu-rekenda. Þeim varð strax ljóst að til að gera kjarasamning þyrfti að minnsta kosti tvo til.

10.9.2007

Ertu í stuði ? Kláraðu þá námið og taktu sveinspróf

Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins hefur hleypt af stokkunum verkefninu “Ertu í stuði?” Verkefnið gengur út á að ná til einstaklinga sem hafa af einhverjum ástæðum ekki lokið námi í rafvirkjun eða rafvélavirkjun. Greina stöðu þeirra, meta færni og gefa þeim kost á að ljúka því iðnnámi sem þeir hófu á sínum tíma.

10.9.2007

3 G - 3ja kynslóð farsíma / morgunverðarfundur

Fyrsti morgunverðarfundur FLR og SART á þessu hausti verður haldinn fimmtudaginn 13. september n.k. í Borgartúni 35, 6. hæð kl. 08:45 - 10:00. Sæmundur E. Þorsteinsson forstöðumaður rannsóknardeildar Símans mun fjalla um 3 G - 3ju kynslóð farsíma.

9.9.2007

Rafiðnaðarskólinn – haust 2007

Námsvísir Rafiðnaðarskólans fyrir haustönn kemur nú út með svipuðu sniði og áður, framboð fagnámskeiða er með hefðbundnum hætti. Nokkur námskeið hafa verið endurnýjuð og verið er að undirbúa nokkur ný námskeið. Áfram verður boðið upp á svonefnd STUTT námskeið þar sem lengd og tímasetning er breytileg. Lögð verður áhersla á samvinnu við fyrirtæki tengd rafiðnaðinum um sérhæfð námskeið og kynningar.

9.9.2007

Raflagnir í hjól- og fellihýsum, húsbílum og tjaldvögnum.

Eins og flestum er kunnugt þá hefur á undanförnum árum hjólhýsum, húsbílum, fellihýsum og tjaldvögnum fjölgað gríðarlega hér á landi. Í mörgum gerðum þessara öku- og tengitækja eru raflagnir og þá fylgir þeim einnig töluvert af ýmis konar rafmagnstækjum.

8.9.2007

Frá Ákvæðisvinnustofu

Ráðgert er að nú á haustmánuðum verði ný útgáfa af ákvæðisvinnu-taxtanum tilbúin til prófunar.  Forritarinn hefur hafið vinnu við að setja upp nýja útgáfu af köflum 09-21. Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á innihaldi taxtans til einföldunar hvað varðar samsett verð og janframt er tekið á nýjum liðum. Þá er liðum fækkað í nokkrum köflum

8.9.2007

Orlofshúsið Ásgarðslandi / haust og vetrarleiga

Nú fer hver að verða síðastur að bóka dvöl í haust og vetur. Hvergi er betra að vera þegar húmar að kveldi og stjörnubjartur himinn skapar rómantíska stemmningu í heita pottinum. Uppl. á skrifstofu SART í síma 591-0150 eða anna@sart.is

7.9.2007

80 ára afmæli FLR

Þann 29. mars s.l. varð Félag löggiltra rafverktaka 80 ára. Í tilefni þess býður félagið félagsmönnum sínum og mökum þeirra til móttöku á Hótel Nordica föstudaginn 21. september nk. milli kl. 18:00 og 20:00. Stjórn FLR  hvetur félagsmenn og maka þeirra til þess að koma og samgleðjast  í tilefni  þessara merku tímamóta og þiggja veitingar.

7.9.2007

Aðalfundur FLR, 2007

Aðalfundur Félags löggiltra rafverktaka verður haldinn á Hótel Nordica föstudaginn 21. september nk. kl. 16:30.

12.7.2007

Staða rafmagnsmála á fyrrum varnarsvæði á Keflavíkurflugvelli

Hafin er vinna við endurbætur á rafkerfi íbúða á svæðinu í samræmi við íslenskar reglur um rafmagnsöryggi og fyrirmæli Neytendastofu. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hefur nú þegar samið við nokkra löggilta rafverktaka varðandi framkvæmd fyrsta hluta verksins.

9.7.2007

Sveinspróf í rafvirkjun var haldið í júní 2007

Að þessu sinni voru prófin haldin bæði í Reykjavík og á Akureyri.

5.7.2007

Skrifstofa SART lokar vegna sumarleyfa

Skrifstofa SART verður lokuð vegna sumarleyfa frá 16. júlí til 6. ágúst.

1.6.2007

Samkeppni Orkuveitunnar við rafverktaka á almennum markaði

Orkuveita Reykjavíkur gerir fyrirtækjum og sveitafélögum tilboð í útilýsingar, m.a. á svæðum sem ekki geta talist til gatna, stíga eða vega. Hér er um að ræða svæðislýsingar, skrautlýsingar og flóðlýsingar, þar sem OR gerir tilboð í heildarpakkann. Spurningar vakna um hvort þessi starfsemi fyrirtækisins brjóti ekki á bága við samkeppnislög og lög nr.146/1996 um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.

1.6.2007

Löglegt en siðlaust, eða hvað ?

Löggildingin er dýrmætt sérleyfi sem rafverktökum er trúað fyrir. Að baki löggildingunni standa miklar kröfur sem þeim er ætlað að standa við, án þeirra skuldbindinga væri löggildingin einskis virði.

15.5.2007

Ávarp Formanns SART við setningu RSÍ þings

Þegar litið er til þess öfluga starfs sem RSÍ og SART ynna af hendi og þann árangur sem náðst hefur með samstarfi aðila, ekki síst á sviði menntamála, þá er ég viss um að forverar okkar sem komu þessu öllu af stað væru sáttir við stöðu mála, þó alltaf megi gera betur og aldrei sé nóg að gert sagði Jens Pétur Jóhannsson formaður SART við setningu RSÍ þings.

1.5.2007

Orlofsuppbót

Starfsmaður sem er í starfi í síðustu viku apríl eða í fyrstu viku maí, skal við upphaf orlofstöku eða eigi síðar en 15. ágúst fá greidda orlofsuppbót, sem er kr. 23.000 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 17.400.

26.4.2007

Skaði af völdum rafmagnsslysa - áhugavert málþing

Málþing fyrir starfsfólk heilbrigðisstofnana og fagfólk í rafiðnaði verður haldið 4. maí í Öskju, húsi náttúrufræða við Háskóla Íslands. Tveir norskir sérfræðingar munu halda erindi um slys af völdum rafmagns og áhrif slíkra slysa á líkamann bæði til skemmri og lengri tíma. Erindi þetta hefur vakið mikla athygli víða erlendis. Boðið er upp á túlkun á erindinu.

26.4.2007

Orlofshúsið - lausar vikur í sumar

Orlofshús rafverktaka er í Ásgarðslandi í Grímsnesi. Enn eru nokkrar lausar vikur í sumar. Uppl. á skrifstofu SART í síma: 591-0150 eða anna@sart.is

26.4.2007

Erlent starfsfólk hefur jákvæð efnahagsleg áhrif

Auður íslenskra heimila væri allt að 5% minni ef aðgangur erlends starfsfólks hefði verið takmarkaður að íslenskum vinnumarkaði. Þetta og margt fleira kom fram morgunverðarfundi SA um erlent starfsfólk á Íslandi.   Sjá nánar

20.4.2007

Rafmagnsöryggismál hjá Neytendastofu eða Byggingastofnun ?

Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu, SART og Samorka hafa nú í annað sinn skilað inn sameiginlegri umsögn um frumvarp til skipulagslaga og frumvarp til laga um mannvirki. Ljóst er að óvissa ríkir um afdrif frumvarpanna í kjölfar kosninga.  

19.3.2007

Ákvæðisvinnustofan flutt í Skeifuna 11b

Ákvæðisvinnustofa rafiðna er flutt í Skeifuna 11b, 2. hæð, þar sem Rafiðnaðarskólinn er til húsa. Símanúmerið er 553-1050 og netfangið er olafur@ar.is og veffangið er www.ar.is

19.3.2007

Neytendastofa innkallar hættulega lampa

Neytendastofa hefur innkallað hættulega borðlampa (hugsanlega standlampa einnig) sem seldir voru af Geymslusvæðinu ehf. (sala varnarliðseigna) á síðari helmingi síðasta árs, 2006, t.d. í Blómavalshúsinu við Sigtún í Reykjavík. Um er að ræða „ameríska“ lampa frá varnarliðinu sem staðsett var á Keflavíkurflugvelli. Skoðun á vegum öryggissviðs Neytendastofu hefur leitt í ljós að af viðkomandi lömpum getur stafað hætta á raflosti. Sjá nánar á vef Neytendastofu

13.3.2007

Frá aðalfundi SART 2007

Aðalfundur SART var haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 9. mars sl. og hófst hann kl. 10:00 árdegis með hefðbundnum aðalfundarstörfum. Að venju buðu Smith & Norland, Reykjafell og Rönning til hádegisverðar.

6.3.2007

TTR-Tæknilegir Tengiskilmálar Raforkudreifingar

Ábendingar hafa borist frá RARIK um að hugsanlega séu menn enn að nota gömlu tengiskilmálana sem runnu sitt skeið þegar nýju TTR tóku gildi. Við minnum því menn á að TTR- Tæknilegir Tengiskilmálar Raforkudreifingar hafa verið endurskoðaðir og birtir í stjórnartíðindum. Bókin er til afgreiðslu á skrifstofu Samorku. Þeir eru jafnframt aðgengilegir á netinu www.samorka.is

6.3.2007

Rafmagnsflugan - tilnefnd til verðlauna

Rafmagnsflugan var eitt af þeim verkefnum sem tilnefnt var á dögunum til nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Rafmagnsflugan er verkfæri til að draga snúrur og leiðslur í röralagnir segir hönnuðurinn Steinþór Bragason. 

26.2.2007

RSÍ staðfestir réttmæti athugasemda SART

RSÍ svarar á heimasíðu sinni þann 21. febrúar sl. athugasemdum SART varðandi skilgreiningar daglauna og útreikning dag-tímalauna. Athugasemdir SART (sem birtust í SART-fréttum og hér á síðunni) beindust að umfjöllun RSÍ um könnun sem Capasent Gallup gerði fyrir RSÍ í september í fyrra. Þar kom fram misvísandi túlkun dag-tímalauna, sem gaf ekki rétta vísun inn í launatöfluna.

9.2.2007

Boðskiptalagnir, leiðbeinandi tæknireglur til umsagnar

Í árslok 2003 var að frumkvæði  félaga og fyrirtækja á Íslandi sem eiga hagsmuna að gæta á sviði boðskiptalagna efnt til samstarfs um að koma upp vinnureglum varðandi tækni- og við­skiptamál. Stefnt var að því að koma upp vinnureglum með svipuðu sniði og unnið er eftir í ná­grannalöndum okkar. Nú liggja þessar vinnureglur fyrir og eru til umsagnar á vef SART 

9.2.2007

Erlendir rafiðnaðarmenn til Íslands árið 2006

Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins veitir umsagnir um menntun og réttindi erlendra rafiðnaðarmanna sem hingað koma til starfa. Þann 1. nóvember sl. hafði skrifstofan samþykkt 256 rafiðnaðarmenn, þar af 211 rafvirkja. Athygli vekur að flestir þessara erlendu starfsmanna voru ráðnir til Bechtel á Reyðarfirði eða 221. 

8.2.2007

Námskeiðaröð SA um starfsmannamál - skráning stendur yfir

SA halda á næstunni námskeið um starfsmannamál fyrir félagsmenn sína, bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni. Boðið verður upp á almenn námskeið um túlkun og framkvæmd kjarasamninga og námskeið um nýjungar í kjarasamningum og lögum og sérhæfða þætti starfsmannamála. Námskeiðin hefjast þriðjudaginn 13. febrúar í Húsi atvinnulífsins en fullbókað er á fyrsta námskeiðið.

7.2.2007

RÚV um gerfihnött

Þann 1. febrúar sl. var skrifað undir samning við norska fjarskipta-fyrirtækið Telenor um sendingar Ríkisútvarpsins, Sjónvarpsins, Rásar 1 og Rásar 2, til dreifbýlissvæða á landinu og næstu miða um Thor II gervihnöttinn. Stefnt er að samvinnu við SART um upplýsingagjöf um viðurkennda uppsetningaraðila gerfihnattabúnaðar.

7.2.2007

Iðnskólinn og Fjöltækniskólinn sameinaðir ?

Stefnt er að sameiningu Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskólans í haust og þeim breytt í einkahlutafélag. 160 starfsmenn eru í fullu starfi í Iðnskólanum en þar eru samtals 2.200 nemendum að fjarnáms-nemendum og kvöldskólanemendum meðtöldum.

5.2.2007

Ljóaleiðari, Cat eða Koax ?

Á ráðstefnunni um framtíðarsýn fyrir boðlagnakerfi íbúðarhúsnæðis sem haldin var þann 25. janúar sl. hélt Örlygur Jónatansson erindi þar sem hann varpaði fram spurningunni Ljósleiðari, Cat eða Koax ? 

4.2.2007

Framtíðarsýn fyrir boðlagnakerfi íbúðarhúsnæðis

Samstarfsnefnd um gerð viðmiðunarreglna fyrir “Framtíðarhúsnæði” var komið á fót vorið 2006. Hópinn mynduðu hönnuðir, verktakar, rafiðnaðarmenn og sérfræðingar á sviði fjarskipta. Við gerð viðmiðunarreglnanna var staðalinn ÍST 150:2002 hafður til hliðsjónar.

1.2.2007

Morgunverðarfundur FLR og SART

Næsti morgunverðarfundur FLR og SART er fimmtudaginn 8. febrúar nk. í Borgartúni 35, 6. hæð og hefst hann kl. 08:45. Á dagskrá er fyrirkomulag heimlagna og samskipti rafverktaka við Orkuveitu Reykjavíkur. Gestur fundarins er Þorvaldur Finnbogason, deildarstjóri hjá Orkuveitunni.

23.1.2007

Óskýr hugtakanotkun í launakönnun fyrir RSÍ

Í launakönnun þeirri sem Capacent Gallup gerði fyrir RSÍ í september sl. og fylgir  kauptöxtum sambandsins fyrir 2007 eru niðurstöður birtar fyrir daglaun og heildarlaun. Því miður er ekki er skilgreint hvað felst í hugtakinu daglaun, sem býður heim misskilningi um hvað í því felst og hvað ekki. 

23.1.2007

Stafir lífeyrissjóður tekur til starfa

Stafir lífeyrissjóður varð til við samruna Samvinnulífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðsins Lífiðnar og tók formlega til starfa að fengnu samþykki fjármálaráðuneytisins þann 1. janúar 2007.

15.1.2007

Stutt-námskeið í "Gæðasölu"

Viltu verða betri sölumaður? Viltu gera starfsmenn þína að betri sölumönnum? Nýtt hjá Rafiðnaðarskólanum.

12.1.2007

Rafiðnaðarskólinn - vorönn

Námsvísir Rafiðnaðarskólans fyrir vorönn 2007 er kominn út. Framboð fagnámskeiða er með hefðbundnum hætti. Nokkur námskeið hafa þó verið endurnýjuð og önnur ný námskeið bætst við. Boðið er upp á nokkur námskeið undir vinnuheitinu STUTT námskeið þar sem lengd og tímasetning er breytileg.

10.1.2007

2,9% hækkun launa 1.1.2007

Þann 1. janúar hækkuðu laun um 2,9%. Lágmarkskauptaxtar SA taka viðbótarhækkun umfram það („taxtar nær greiddu kaupi") en leiðbeinandi kauptaxtar SART hækka um 2,9%.  Vakin er sérstök athygli á því að í kaupskrá RSÍ voru þau mistök gerð að SA / SART taxtarnir voru hækkaðir með sama hætti og lágmarkstaxtar SA. Taflan frá RSÍ er því röng. Á innraneti SART eru leiðbeinandi kauptaxtar SART fyrir árið 2007 ásamt lágmarkskauptöxtum SA/RSÍ. 

10.1.2007

Rafræn þjónustugátt fyrir neytendur og rafverktaka

Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, opnaði á föstudag nýja heimasíðu Neytendastofu. Um leið opnaði Neytendastofa rafræna þjónustugátt fyrir neytendur, fagaðila og allan almenning sem hafa samskipti við stofnunina.

9.1.2007

Reglur um fjarskiptalagnir innanhúss

Póst- og fjarskiptastofnun hefur sett reglur um innanhússfjarskipta-lagnir sem birtar voru í Stjórnartíðindum 29. desember sl. Reglurnar taka til frágangs á innanhússlögnum fyrir fjarskipti, þ.m.t. húskassa, í íbúðar- og atvinnuhúsnæði og heimilda til aðgangs að lögnunum.

9.1.2007

Vodafone með heimilisþjónustu um ljósleiðara Gagnaveitu Reykjavíkur

Vodafone mun framvegis veita þjónustu fyrirtækisins við heimili yfir ljósleiðaranet Gagnaveitu Reykjavíkur. Vodafone er stærsti einstaki aðilinn sem samið hefur verið við um aðgang að ljósleiðaranetinu.


Samstarfsaðilar

Smelltu á mynd til að fara á vef

Sa til hægri
mannvirkjastofnun
Mannvirkjastofnun
Rafiðnaðarskólinn
Fræðsluskrifstofa
Rafiðnarasambandið
Rafbók
Ákvæðisvinnustofa 
Stafir til hægri

Öryggi fagmennska

Slóðin þín:

Fréttir

Toppmynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Veftré