Fréttir
22.9.2006
Aðalfundur FLR haldinn hjá Orkuveitunni
Aðalfundur FLR verður haldinn föstudaginn 29. september nk. kl. 16:30, í ráðstefnusal Orkuveitu Reykjavíkur. Að loknum aðalfundarstörfum mun Þorvaldur Finnbogason deildarstjóri fjalla um samvinnu og samskipti OR við rafverktaka og Guðjón Magnússon framkvæmdastjóri mun kynna Orkuveituna og helstu framkvæmdir á hennar vegum. Veitingar verða í boði Orkuveitunnar.
22.9.2006
Fréttir frá Ákvæðisvinnustofu
Þegar þetta er skrifað hefur starfsmaður ákvæðisvinnustofu haldið fjórtán fundi með rafverktökum og starfsmönnum þeirra. Á þessum fundum sem standa yfir í ca.2-2,5 klst. er farið yfir ákvæðisvinnugrundvöllinn sem er vistaður á netinu og menn gera verkefni sem gefur góða innsýn í hvernig forritið er byggt upp.
18.9.2006
Umsögn um frumvarp til skipulagslaga og frumvarp um mannvirki
Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar- og þjónustu, Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði og Samorka hafa skilað sameiginlegri umsögn um frumvarp til skipulagslaga og frumvarp um mannvirki.
17.9.2006
Tæknilegir Tengiskilmálar Raforkudreifingar-TTR
TTR- Tæknilegir Tengiskilmálar Raforkudreifingar hafa verið endurskoðaðir og birtir í stjórnartíðindum. Bókin er til afgreiðslu á skrifstofu Samorku. Þeir eru jafnframt aðgengilegir á netinu.
Smellið hér
11.9.2006
Orkuþing
Undirbúningur að ORKUÞINGI 2006 er nú í fullum gangi. Þingið verður haldið dagana12. og 13. október n.k. og fer fram á Grand Hótel Reykjavík.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













