Fréttir
10.11.2006
Fundaröð SART, Samorku og Neytendastofu
SART, Samorka og Neytendastofa efna til funda með rafverktökum. Málefni fundana er m.a. ÍST 200-2006 nýr staðall um raflagnir bygginga, TTR-Tæknilegir tengiskilmálar raforkudreyfingar og samskipti rafverktaka, Neytendastofu og orkufyrirtækja.
7.11.2006
Ólöglegt rafverktakafyrirtæki ?
Fyrirtækið Rafstraumur ehf, Klukkubergi 41 í Hafnarfirði er fyrirtæki sem hjá fyrirtækjaskrá er skilgreint skv. ISAT í flokki 45.31.0 Raf- og boðlagnir; starfsemi rafverktaka. Samkvæmt iðnaðarlögum skal löggilt iðngrein rekin undir handleiðslu iðnmeistara og skv. lögum nr. 146/1996 um öryggi raforkuvirkja neysluveitna og raffanga og reglugerð um raforkuvirki er engum öðrum en löggiltum rafverktökum heimilt að stunda rafverktöku. Hvorugt þessara ákvæða virðist vera virt í þessu tilfelli.
3.11.2006
Rafvirkjanemar í verktöku
Tveir rafvirkjanemar geta bætt við sig verkefnum, allt mögulegt kemur til greina. Uppl. í síma: xxx xxxx, Nonni. Svona smáauglýsing birtist í Fréttablaðinu á dögunum undir "rafvirkjun".
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













