Fréttir
14.6.2005
Ársskýrsla um markaðseftirlit raffanga 2004.
Rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu annast opinbera markaðsgæslu raffanga. Hún fylgist með rafföngum á markaði og aflar á skipulegan hátt upplýsinga um þau og tekur við ábendingum frá neytendum og öðrum aðilum.
14.6.2005
Stórhættulegt straujárn
Rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu hefur borist tilkynning um straujárn, með gerðarmerkingunni „PERLA", sem valdið hefur a.m.k. þremur dauðsföllum í Grikklandi.
6.6.2005
ÍST 170 - Nýr staðall á háspennusviði
Búið er að staðfesta staðalinn ÍST 170 Háspennuvirki fyrir riðspennu yfir 1KV. Staðallinn er þýðing á evrópsku samræmingarskjölunum HD 637, með þremur íslenskum sérákvæðum. Staðallinn inniheldur ákvæði um hönnun og setningu raforkuvirkja með riðspennu yfir 1 KV. Löggildingarstofa lét á sínum tíma þýða fyrrgreind samræmingarskjöl á íslensku.
3.6.2005
Hættuspil DV og Steina sleggju, rafmagn er ekkert grín
Manni verður nú bara orðavant við lestur greinarinnar “Skipt um dós” í DV í dag, föstudaginn 3. júní. Þar er frjálslega farið með og lítið útskýrt. Maður fær það á tilfinninguna að tilgangurinn sé að láta fólk fara sér að voða. Rafmagn er nú einu sinni þess eðlis að gálgahúmor og/eða vankunnátta sem sem þessi grein ber með sér, er vægast sagt hættuleg.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef