Fréttir
28.10.2005
ÍST 200, nýr staðall í stað reglugerðar um raforkuvirki
Menn hafa í gegnum tíðina fundið gömlu reglugerðinni ýmislegt til foráttu en það kæmi mér ekki á óvart að við þessar aðstæður fái hún hið mesta lof og verði talin hin besta bók, sagði Ásbjörn Jóhannesson framkvæmdastjóri SART á morgunverðarfundi Rafstaðlaráðs og Neytendastofu.
21.10.2005
Hvers mega fagmenn á rafmagnssviði vænta?
Neytendastofa og Staðlaráð boða til morgunverðarfundar föstudaginn 28. október n.k. á Nordica Hótel kl. 8.15-9.40.
20.10.2005
Löggilding rafverktaka - svar Umhverfisráðuneytis
Á aðalfundi SART sem haldinn var í mars sl. var samþykkt ályktun þar sem þeim tilmælum var beint til stjórnvalda að lögum verði breytt á þannn veg að löggilding Iðnaðarráðuneytis veiti öll þau réttindi sem þarf til að löggiltir rafverktakar geti óhindrað rekið þá starfsemi sem þeir hafa menntun og réttindi til. Skriflegt svar barst frá Umhverfisráðuneytinu.
18.10.2005
Þrír rafverktakar á sömu veitunni, óviðunandi ástand.
Sú staða getur komið upp að þrír rafverktakar (rafvirkjameistarar) séu skráðir á sama verkið / húsið. Ástæðan er að þrír opinberir aðilar koma að málinu sem ekki virðast vita hvor af öðrum og byggingarstjórinn og rafverktakarnir sjálfir fara ekki að settum reglum um skráningar. Þetta ástand er ekki hægt að búa við og verður að færa til betri vegar. Hér kemur dæmi um hvernig þetta getur gerst.
14.10.2005
Haustferð FLR
Hin árlega haustferð FLR verður farin laugardaginn 22. október n.k. ef næg þátttaka fæst.
7.10.2005
Samstarf SART og 365 ljósvakamiðla
365 ljósvakamiðlar munu fljótlega hefja stafræna útsendingu á örbylgjusjónvarpi um Suðurland. Þetta er annar hluti Digital Ísland verkefnisins og er það unnið í samstarfi við SART og Rafiðnaðarskólann eins og hið fyrra.
6.10.2005
Breytingar hjá Lífiðn
Friðjón Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Lífiðnar hefur sagt starfi sínu lausu hjá sjóðnum frá og með 1. október 2005 og mun hann hverfa frá störfum fljótlega til að takast á hendur starf hjá Sjóvá hf. sem framkvæmdastjóri fjárfestingarsviðs.
3.10.2005
Morgunverðarfundur FLR og SART - EES Vinnumiðlun
Á morgunverðarfundi FLR og SART sem haldinn verður fimmtudaginn 13. október n.k. í Borgartúni 35, 6. hæð, munu fulltrúar frá Vinnumálastofnun fjalla um mögulega ráðningu erlends vinnuafls. Árlega koma nokkur hundruð starfsmanna til íslenskra fyrirtækja gegnum EES-Vinnumiðlun.
1.10.2005
Allt sem þú vildir vita um lífeyrismál en þorðir ekki að spyrja um!
Lífeyrissjóðurinn Lífiðn boðar til sjóðfélagafundar um lífeyrismál á fimmtudaginn 6. október nk. kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn að Stórhöfða 31, Reykjavík, þar sem sjóðurinn er til húsa. Gengið er inn að neðanverðu (Grafarvogsmegin).
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













