Fréttir
28.5.2004
Frá Orkuveitu Reykjavíkur
Rafverktökum býðst nú sú þjónusta að senda Orkuveitunni þjónustubeiðni á rafrænu formi.
21.5.2004
Ellefu verkföll á jafnmörgum árum - stríðsástand í Svíþjóð
Í dag er þriðjudagur 4. maí 2004 og enn hillir ekki undir nýjan kjarasamning rafverktaka og viðsemjenda þeirra. Hins vegar hafa þrjár verkfallsboðanir borist frá Rafvirkjasambandinu með nokkurra daga millibili. Vegna þessa ástands hef ég undanfarna daga lesið úrklippur úr blöðum frá öllum landshornum og það er ekki uppörvandi lesning. Svo mælir Hans Enström framkvæmdastjóri EIO, samtökum sænsku rafverktakanna, í ritstjórnargrein í blaðinu "Elinstallatören". Og enn er deilan í hnút. Greinin er birt í heild sinni hér á síðunni.
20.5.2004
Geislamælirinn finnur týndar dósir og rör
SART hefur nú eignast nýjan geislamælir til að finna týndar lagnir. Aðferðin við leitina byggir á því að fjöður með geislavirkri lind á endanum er rekin í rörin og mælitækið staðsetur síðan lindina mjög nákvæmlega og losar þar með menn við óþarfa brotverk.
19.5.2004
Byggingarvísitalan
Við útreikning Hagstofunnar á byggingarvísitölum fyrir maí þar sem teknar eru inn hækkanir vegna kjarasamninga er útseld mælieining rafvirkja ekki rétt.
14.5.2004
Aðalfundur SART
Aðalfundur SART var haldinn á Grand Hótel Reykjavík, föstudaginn 7. maí s.l. Fundinn sóttu u.þ.b. sextíu félagsmenn. Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum snæddu fundarmenn hádegisverð í boði Johan Rönning, Reykjafells og Smith & Norland.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













