Fréttir
5.2.2004
Rafmagn sem fyrirbyggjandi brunavörn Morgunverðarfundur
Fréttamenn segja oft að eldsupptök séu ókunn en grunur leiki á að kviknað hafi í út frá rafmagni. Það gleymist oft að rafmagn er einn stæsti einstaki þátturinn í fyrirbyggjandi brunavörnum. Á morgun-verðarfundi FLR og SART fimmtudaginn 12. febrúar n.k. mun Guðmundur Gunnarsson yfirverkfræðingur hjá Brunamálastofnun fjalla um málefni rafmagns og eldvarna frá ýmsum sjónarhornum.
5.2.2004
Námskeið um neyðarlýsingu
4.2.2004
Löggildingar rafvirkjameistara
Rafverktakar verða einir iðnmeistara að búa við það óhagræði að þurfa löggildingu tveggja ráðuneyta til sömu starfa. Á vegum iðnaðarráðherra er að störfum nefnd sem fjalla á um breytingar á byggingarreglugerðinni. SART hefur ritað nefndinni bréf þar sem óskað er eftir því að nefndin stuðli að því að þarna verði breyting á, þannig að B-löggilding Iðnaðaráðuneytis veiti rafverktökum ein og sér öll þau réttindi sem þarf til að þeir geti óhindrað rekið þá starfsemi sem þeir hafa menntun og reynslu til.
3.2.2004
Saga rafmagns og rafvirkjameistara samtvinnuð
Hundrað ára saga saga rafmagnsins og rafvirkjameistara er eðlilega samtvinnuð og því er forvitnilegt að rifja upp stofnun "Félags rafvirkjameistara" frá árinu 1927. Fyrsta verk félagsins var að gera kjarasamning við rafvirkjafélagið og var dagvinnukaup ákveðið kr. 1,70 á tímann fyrir þá sem gátu lagt fjögur lampastæði á dag í gömlu timburhúsi. Í þá daga ríkti samkeppni, það má lesa í bréfi sem félagið ritaði rafmagnsstjóra af því tilefni: "Samkeppnin er hér orðin óhæfileg, en það stafar af því að í bænum er ekki nægileg vinna handa þessum 5 mönnum og þó vinnur einn þessara manna einn síns liðs".
2.2.2004
Rafmagn á Íslandi í 100 ár
Í ár eru liðin 100 ár frá því að Lækurinn í Hafnarfirði var virkjaður og rafmagni veitt í nærliggjandi hús. Í tilefni af þessum tímamótum munu íslensku orkufyrirtækin efna til kynninga og fræðslu hvert á sínu orkuveitusvæði.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













