Fréttir
29.11.2004
Desemberuppbót
Starfsmenn sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sama fyrirtæki og eru við störf í fyrirtækinu síðustu viku í nóvember eða í fyrstu viku desember skulu eigi síðar en 15. desember fá greidda sérstaka eingreiðslu, desemberuppbót.
22.11.2004
SART rafverktakar þjónusta Norðurljós
Að undanförnu hafa verið haldin námskeið í Rafiðnaðarskólanum í stafrænni sjónvarpstækni á örbylgju. Námskeiðin eru einungis ætluð rafiðnaðarmönnum sem starfa hjá fyrirtækjum SART við verkefnið Digital Ísland, sem er breyting á örbylgjudreifingu Norðurljósa yfir í stafræna tækni.
18.11.2004
Hættuleg sjónvarpstæki.
Innköllun á varasömum sjónvarpstækjum sem seld voru haustið 2003 fer nú fram á vegum Sony.
8.11.2004
Rafiðnaðarskólinn og SART í samstarfi við Norðurljós
Síðastliðnar tvær vikur hafa verið haldin námskeið í Rafiðnaðarskólanum í stafrænni sjónvarpstækni á örbylgju. Námskeiðin eru einungis ætluð rafiðnaðarmönnum sem starfa hjá fyrirtækjum SART við verkefnið Digital Ísland, sem er breyting á örbylgjudreifingu Norðurljósa yfir í stafræna tækni. Verktakarnir munu á næstu vikum aðstoða viðskiptavini Norðurljósa með loftnetskerfin á heimilum þeirra og uppsetningu loftneta.
2.11.2004
Brunar og slys vegna rafmagns árið 2003
Í nýútkominni skýrslu Löggildingarstofu kemur fram að hátt í 60% rafmagnsbruna á heimilum er vegna vegna eldavéla og sjónvarpa. Rafiðnaðarmönnum finnst ástæða til að árétta að í flestum þessara tilfella er rafmagnið ekki beinn orsakavaldur heldur röng umgengni og meðferð þessara annars ágætu heimilistækja.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













