Fréttir
8.10.2004
Boðskiptalagnir - fundur með verktökum
SART boðar til fundar með þeim rafiðnaðarmönnum sem áhuga hafa á að gerast þjónustuaðilar varðandi verkefni Íslenska útvarpsfélagsins Digital Ísland (stafrænt sjónvarp).
7.10.2004
Samstarf um boðskiptalagnir
Komið hefur verið á samstarfi hagsmunaaðila um boðskiptalagnir (sem hlotið hefur vinnuheitið SHB) Aðilar að samstarfinu eru eftirtaldir aðilar: SART (fyrir hönd rafverktaka), Íslenska útvarpsfélagið, OgVodafone, RÚV, Síminn, Samtök innflytjenda raflagnaefnis og Neytendasamtökin. Samkomulagið innifelur meðal annars reglur um þjónustu og vinnuferli sem allir samstarfsaðilar gangast undir að starfa eftir.
6.10.2004
Ákvæðisvinnustofa rafiðna
SART og RSÍ hafa ákveðið að sameinast aftur um rekstur Ákvæðisvinnustofunnar og kynningu á ákvæðisvinnu-taxtanum. Ólafur Sigurðsson rafvirki og rafverktaki hefur verið ráðinn starfsmaður og var stofan opnuð að nýju þann 1. október s.l. í húsi atvinnnulífsins að Borgartúni 35.
5.10.2004
Löggildingarstofa verður að Neytendastofu
Með hliðsjón af niðurstöðu nefndar um íslenskt viðskiptaumhverfi hefur viðskiptaráðuneytið unnið drög að frumvörpum til breytinga á skipulagi samkeppnisyfirvalda og neytendamála.
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













