Beint á leiðarkerfi vefsins
Sart.is

Fréttir

28.12.2004

Hættulegur neyðarlýsingarlampi (ÚT-lampi).

Innköllun á hættulegum neyðarlýsingarlömpum (ÚT-lömpum) frá Daisalux á Spáni fer nú fram á vegum S. Guðjónssonar ehf. Nokkrir brunar hafa orðið af völdum þessara lampa hér á landi.

18.12.2004

Að gefnu tilefni - tilkynning frá Lífiðn

Að gefnu tilefni sendir Lífeyrissjóðurinn Lífiðn út tilkynningu til að fræða sína sjóðfélaga og aðra um það að hækkun iðgjalda um áramót úr 10% í 11% þýðir hækkun réttinda hjá sjóðfélögum Lífiðnar. Sú alhæfing fjölmiðla þess efnis að hækkun iðgjalds leiði ekki til aukinna réttinda gildir ekki um Lífeyrissjóðinn Lífiðn.

17.12.2004

Breytingar á vöxtum og útlánareglum Lífiðnar

Stjórn Lífeyrissjóðsins Lífiðnar hefur ákveðið að frá og með 16. desember 2004, eru fastir vextir af nýjum lánum (A-lánum) Lífiðnar 4,20%.  Vextir lána með breytilegum vöxtum (B-lán) lækka í 4,50% frá og með sama degi. 

16.12.2004

Frétt frá Lífiðn - Mótframlag hækkar um áramót

Athygli sjóðfélaga Lífiðnar og vinnuveitenda þeirra er vakin á því að þann 1. janúar 2005 tekur gildi hækkun á mótframlagi atvinnurekenda úr 6 í 7 % í samtryggingardeild. Um þessa breytingu er kveðið á í kjarasamningum milli aðildarsambanda og félaga Alþýðusambands Íslands við Samtök atvinnulífsins frá því á árinu 2004. Samtímis fellur niður skylda atvinnurekenda til að greiða 1% framlag í séreignarsparnað fyrir þá starfsmenn sem ekki leggja neitt fyrir sjálfir á móti.

14.12.2004

Rafmagnið og jólin

Rafmagn er einn stórvirkasti brennuvargur nútímans. Á hverju ári verða margir eldsvoðar sem eiga upptök sín í rafbúnaði. Stundum kviknar í vegna bilunar en oftast er um að ræða að gáleysi í umgengni við rafmagn valdi slysum eða íkveikju.

10.12.2004

Bjartsýni meðal verktaka

Afkomuvæntingar fyrirtækja eru mjög svipaðar og fyrir ári síðan, samkvæmt niðurstöðum könnunar Samtaka atvinnulífsins meðal aðildarfyrirtækja.

9.12.2004

Hreyfing á vinnumarkaði

Þó nokkur fjölgun starfa virðist framundan á vinnumarkaði, samkvæmt niðurstöðum könnunar Samtaka atvinnulífsins á ráðningaráformum fyrirtækja sem gerð var í nóvember.

8.12.2004

Í klóm kennitöluhoppara

Forráðamenn Samtaka iðnaðarins hafa ítrekað bent á það siðleysi sem felst í svokölluðu kennitöluhoppi. Það á við þegar fyrirtæki verður gjaldþrota en nýtt fyrirtæki með nýrri kennitölu er stofnað á rústum þess fyrrnefnda.

7.12.2004

Jóla-morgunverðarfundur FLR og SART

Síðasti morgunverðarfundur FLR og SART á árinu verður haldinn fimmtudaginn 9. desember n.k. kl. 08-45 - 10:00 árdegis í Borgartúni 35, 6. hæð. Haukur Geir Guðnason frá Rafteikningu ehf. flytur erindi um Efnisval í 400 Vac dreifingum.

6.12.2004

Verktakaþjónusta Símans á SART vefnum

Síminn hefur ákveðið að skrá yfir þjónustuaðila fyrir Breiðband Símans verði vistuð á heimasíðu SART. Það er í anda samkomulags sem hagsmunaaðilar um boðskiptalagnir gerðu með sér í upphafi árs.

29.11.2004

Desemberuppbót

Starfsmenn sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sama fyrirtæki og eru við störf í fyrirtækinu síðustu viku í nóvember eða í fyrstu viku desember skulu eigi síðar en 15. desember fá greidda sérstaka eingreiðslu, desemberuppbót. 

22.11.2004

SART rafverktakar þjónusta Norðurljós

Að undanförnu hafa verið haldin  námskeið í Rafiðnaðarskólanum í stafrænni sjónvarpstækni á örbylgju. Námskeiðin eru einungis ætluð rafiðnaðarmönnum sem starfa hjá fyrirtækjum SART við verkefnið Digital Ísland, sem er breyting á örbylgjudreifingu Norðurljósa yfir í stafræna tækni.

18.11.2004

Hættuleg sjónvarpstæki.

Innköllun á varasömum sjónvarpstækjum sem seld voru haustið 2003 fer nú fram á vegum Sony.

8.11.2004

Rafiðnaðarskólinn og SART í samstarfi við Norðurljós

Síðastliðnar tvær vikur hafa verið haldin námskeið í Rafiðnaðarskólanum í stafrænni sjónvarpstækni á örbylgju. Námskeiðin eru einungis ætluð rafiðnaðarmönnum sem starfa hjá fyrirtækjum SART við verkefnið Digital Ísland, sem er breyting á örbylgjudreifingu Norðurljósa yfir í stafræna tækni. Verktakarnir munu á næstu vikum aðstoða viðskiptavini Norðurljósa með loftnetskerfin á heimilum þeirra og uppsetningu loftneta.

2.11.2004

Brunar og slys vegna rafmagns árið 2003

Í nýútkominni skýrslu Löggildingarstofu kemur fram að hátt í 60% rafmagnsbruna á heimilum er vegna vegna eldavéla og sjónvarpa. Rafiðnaðarmönnum finnst ástæða til að árétta að í flestum þessara tilfella er rafmagnið ekki beinn orsakavaldur heldur röng umgengni og meðferð þessara annars ágætu heimilistækja.

8.10.2004

Boðskiptalagnir - fundur með verktökum

SART boðar til fundar með þeim rafiðnaðarmönnum sem áhuga hafa á að gerast þjónustuaðilar varðandi verkefni Íslenska útvarpsfélagsins Digital Ísland (stafrænt sjónvarp).

7.10.2004

Samstarf um boðskiptalagnir

Komið hefur verið á samstarfi hagsmunaaðila um boðskiptalagnir (sem hlotið hefur vinnuheitið SHB) Aðilar að samstarfinu eru eftirtaldir aðilar: SART (fyrir hönd rafverktaka), Íslenska útvarpsfélagið, OgVodafone, RÚV, Síminn, Samtök innflytjenda raflagnaefnis og Neytendasamtökin. Samkomulagið innifelur meðal annars reglur um þjónustu og vinnuferli sem allir samstarfsaðilar gangast undir að starfa eftir.  

6.10.2004

Ákvæðisvinnustofa rafiðna

SART og RSÍ hafa ákveðið að sameinast aftur um rekstur Ákvæðisvinnustofunnar og kynningu á ákvæðisvinnu-taxtanum. Ólafur Sigurðsson rafvirki og rafverktaki hefur verið ráðinn starfsmaður og var stofan opnuð að nýju þann 1. október s.l. í húsi atvinnnulífsins að Borgartúni 35.

5.10.2004

Haustferð FLR

Félag Löggiltra rafverktaka fór í sína árlegu haustferð á dögunum.

5.10.2004

Löggildingarstofa verður að Neytendastofu

Með hliðsjón af niðurstöðu nefndar um íslenskt viðskiptaumhverfi hefur viðskiptaráðuneytið unnið drög að frumvörpum til breytinga á skipulagi samkeppnisyfirvalda og neytendamála.

22.9.2004

Rafbúnaður í gisti- og veitingahúsum

Síðastliðin tvö ár hefur rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu látið skoða raflagnir á þriðja hundrað gisti- og veitingahúsa víðsvegar um landið. Markmiðið með skoðununum var að fá sem gleggsta mynd af ástandi raflagna og rafbúnaðar í gisti- og veitingahúsum og koma ábendingum á framfæri við eigendur og umráðamenn þeirra um það sem betur má fara.

7.9.2004

Hættulegir straumbreytar

Rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu hefur vakið athygli á innköllun á straumbreytum. 

6.9.2004

Breytingar á útlánum til sjóðfélaga Lífiðnar.

Stjórn Lífiðnar hefur ákveðið að sjóðfélögum gefist kostur á tveimur flokkum lána.  A-Lán og B-Lán.

31.8.2004

Hættulegt ferðamillistykki.

Raffangasalinn TARGUS stendur nú fyrir innköllun á u.þ.b. 200 hættulegum ferðamillistykkjum sem seld hafa verið á Íslandi.

31.8.2004

Ný heimasíða Rafiðnaðarskólans - skráning á námskeið gengur vel

Ný heimasíða fyrir Rafiðnaðarskólann var formlega tekin í  notkun 25.ágúst s.l.  Á síðunni má finna upplýsingar um alla starfsemi skólans, auk þess er hægt að skrá sig á námskeið beint á Internetinu. Menn eru hvattir til að skrá sig á póstlista skólans á heimasíðunni, til að fá póstsendar allar tilkynningar um það  sem er að gerast í skólanum hverju sinni.

17.8.2004

Útseld vinna verður að hækka

Rafverktakar standa frammi fyrir þeim veruleika að arðsemi af sölu efnis fer sífellt minnkandi. Bæði hefur efnissalan minnkað og aukin samkeppni sker niður álagninguna. Við þessar breyttu aðstæður verður hagnaður fyrirtækjanna í auknu mæli að koma frá útseldu vinnunni eða af enn öðrum þáttum. Rafverktakar verða að viðurkenna þá staðreynd að útseld tímavinna er almennt langt undir ásættanlegum mörkum.

3.6.2004

Hagstofan leiðréttir útreikninga

SART sendi á dögunum athugasemd til Hagstofunnar þar sem bent var á að hækkun á útseldri mælieiningu rafvirkja vegna kjarasamninga væri ekki rétt. Þetta hefur nú verið leiðrétt.

3.6.2004

Samkeppni Orkuveitu Reykjavíkur við rafverktaka á almennum markaði.

Í útboði á lágspennuskápum sem fram fór á vegum Orkuveitu Reykjavíkur í apríl s.l. var Verkstæði Orkuveitunnar á meðal bjóðenda. Aðferð þessi hefur vakið athygli rafverktaka og efast margir um lögmæti hennar. SART hefur óskað eftir skýringum frá fyrirtækinu. 

28.5.2004

Frá Orkuveitu Reykjavíkur

Rafverktökum býðst nú sú þjónusta að senda Orkuveitunni þjónustubeiðni á rafrænu formi.

21.5.2004

Ellefu verkföll á jafnmörgum árum - stríðsástand í Svíþjóð

Í dag er þriðjudagur 4. maí 2004 og enn hillir ekki undir nýjan kjarasamning rafverktaka og viðsemjenda þeirra. Hins vegar hafa þrjár verkfallsboðanir borist frá Rafvirkjasambandinu með nokkurra daga millibili. Vegna þessa ástands hef ég undanfarna daga lesið úrklippur úr blöðum frá öllum landshornum og það er ekki uppörvandi lesning. Svo mælir Hans Enström framkvæmdastjóri EIO, samtökum sænsku rafverktakanna, í ritstjórnargrein í blaðinu "Elinstallatören". Og enn er deilan í hnút. Greinin er birt í heild sinni hér á síðunni.

20.5.2004

Geislamælirinn finnur týndar dósir og rör

SART hefur nú eignast nýjan geislamælir til að finna týndar lagnir. Aðferðin við leitina byggir á því að fjöður með geislavirkri lind á endanum er rekin í rörin og mælitækið staðsetur síðan lindina mjög nákvæmlega og losar þar með menn við óþarfa brotverk. 

19.5.2004

Byggingarvísitalan

Við útreikning Hagstofunnar á byggingarvísitölum fyrir maí þar sem teknar eru inn hækkanir vegna kjarasamninga er útseld mælieining rafvirkja ekki rétt.

14.5.2004

Aðalfundur SART

Aðalfundur SART var haldinn á Grand Hótel Reykjavík, föstudaginn 7. maí s.l.  Fundinn sóttu u.þ.b. sextíu félagsmenn. Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum  snæddu fundarmenn hádegisverð í boði Johan Rönning, Reykjafells og  Smith & Norland.

29.4.2004

Kjarasamningar

RSÍ samþykkir kjarasamning SA-SART / RSÍ með afgerandi hætti

15.4.2004

Kjarasamningur SART-SA / RSÍ

Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli SA og SART annars vegar og RSÍ hins vegar. Líkt og fyrri samningar sem SA hafa gert að undanförnu gildir hann til ársloka 2007.

7.4.2004

Drög að nýjum reglum um almenna heimild til fjarskiptastarfsemi.

Með lögum um fjarskipti nr. 81/2003 var afnumin með öllu skylda fjarskiptafyrirtækja til þess að sækja um sérstakt rekstrarleyfi hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Hluti fjarskiptafyrirtækja naut almennrar heimildar samkvæmt eldri lögum og var undanþeginn rekstrarleyfisskyldu, en nú á það við um öll fjarskiptafyrirtæki.

7.4.2004

Nýr staðall tók gildi 1. apríl

ÍST 130:2004 Upplýsingatækni – íslenskar kröfur

6.4.2004

Kostnaður vegna skoðana á öryggisstjórnun nýrra rafverktaka

Löggildingarstofa hefur ákveðið að framvegis greiði rafverktakar sjálfir fyrir skoðanir á öryggisstjórnun vegna nýrra löggildinga.

5.4.2004

Aðalfundur SA 4. maí

Samtök atvinnulífsins halda aðalfund sinn þriðjudaginn 4. maí á Grand Hótel Reykjavík.

1.4.2004

Fyrirmynda leitað hjá rafverktökum

Rafverktökum ber að reka innri öryggisstjórnunarkerfi, en sæta jafnframt úrtaksskoðunum skoðunarstofa, sem fer fækkandi komi þeir ítrekað vel út. Slíkt fyrirkomulag mætti viðhafa víðar.

30.3.2004

Póstlistinn hjá Lífiðn

Nú geta einstaklingar skráð sig á póstlista hjá Lífiðn. Þetta er góður kostur fyrir þá sem vilja fylgjast vel með því sem er að gerast hjá sjóðnum

29.3.2004

Staðlar í raftækni, hindrun eða hjálpartæki ?

Fyrirlestur marsmánaðar  verður haldinn í Rafiðnaðarskólanum,
miðvikudaginn 31. mars næstkomandi kl. 20:00

18.3.2004

Öryggisstjórnun rafveitna / löggiltir rafverktakar

Sú breyting hefur verið gerð á reglugerð um raforkuvirki að löggiltir rafverktakar geta nú tekið að sér ábyrgð á öryggistjórnun rafveitna án takmarkana en þó að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Við breytingu á reglugerðinni árið 1998 var ekki tekið tillit til sjónarmiða rafverktaka varðandi ábyrgðarmenn rafveitna og er því ástæða til að fagna þessari breytingu 

16.3.2004

Lífiðn á morgunverðarfundi

Á morgunverðarfundi FLR og SART sem haldinn var í Borgartúni 35 þann 11. mars s.l. fjölluðu  þeir Friðjón Rúnar Sigurðsson og Viktor Guðmundsson um starfsemi lífeyrissjóðsins  Lífiðnar. Þar kom fram að starfsemi sjóðsins gekk mjög vel á síðasta ári .

1.3.2004

Styrkir vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu,

5.2.2004

Rafmagn sem fyrirbyggjandi brunavörn Morgunverðarfundur

Fréttamenn segja oft að eldsupptök séu ókunn en grunur leiki á að kviknað hafi í út frá rafmagni.  Það gleymist oft að rafmagn er einn stæsti einstaki þátturinn í fyrirbyggjandi brunavörnum.  Á morgun-verðarfundi FLR og SART  fimmtudaginn 12. febrúar n.k. mun Guðmundur Gunnarsson yfirverkfræðingur hjá Brunamálastofnun fjalla um málefni rafmagns og eldvarna frá ýmsum sjónarhornum.

5.2.2004

Námskeið um neyðarlýsingu

Námskeið um neyðarlýsingu er haldið dagana 16. og 17. febrúar á Grand Hótel Reykjavík í sal Gallerý. Námskeiðið er á vegum Brunamálastofnunar og Ljóstæknifélags Íslands.

4.2.2004

Löggildingar rafvirkjameistara

Rafverktakar verða einir iðnmeistara að búa við það óhagræði að þurfa löggildingu tveggja ráðuneyta til sömu starfa. Á vegum iðnaðarráðherra er að störfum nefnd sem fjalla á um breytingar á byggingarreglugerðinni. SART hefur ritað nefndinni bréf þar sem óskað er eftir því að nefndin stuðli að því að þarna verði breyting á, þannig að B-löggilding Iðnaðaráðuneytis veiti rafverktökum ein og sér öll þau réttindi sem þarf til að þeir geti óhindrað rekið þá starfsemi sem þeir hafa menntun og reynslu til.

3.2.2004

Saga rafmagns og rafvirkjameistara samtvinnuð

Hundrað ára saga saga rafmagnsins og rafvirkjameistara er eðlilega samtvinnuð og því er forvitnilegt að rifja upp stofnun "Félags rafvirkjameistara" frá árinu 1927. Fyrsta verk félagsins var að gera kjarasamning við rafvirkjafélagið og var dagvinnukaup ákveðið kr. 1,70 á tímann fyrir þá sem gátu lagt fjögur lampastæði á dag í gömlu timburhúsi.  Í þá daga ríkti samkeppni, það má lesa í bréfi sem félagið ritaði rafmagnsstjóra af því tilefni: "Samkeppnin er hér orðin óhæfileg, en það stafar af því að í bænum er ekki nægileg vinna handa þessum 5 mönnum og þó vinnur einn þessara manna einn síns liðs".

2.2.2004

Rafmagn á Íslandi í 100 ár

Í ár eru liðin 100 ár frá því að Lækurinn í Hafnarfirði var virkjaður og rafmagni veitt í nærliggjandi hús. Í tilefni af þessum tímamótum munu íslensku orkufyrirtækin efna til kynninga og fræðslu hvert á sínu orkuveitusvæði.

20.1.2004

Ný fyrirtæki boðin velkomin

Á síðasta ári gengu ellefu ný fyrirtæki til liðs við aðildarfélög SART og eru þau hér með boðin velkomin í hópinn.

19.1.2004

Fyrirlestur janúarmánaðar í Rafiðnaðarskólanum

Miðvikudaginn 21. janúar næstkomandi kl. 20:00 heldur Hannes Jóhannsson yfirmaður tæknirekstrardeildar RÚV fyrirlestur sem nefnist  "Fjölmiðlar og fjarskipti"

19.1.2004

Rafiðnaðarskólinn - vorönn 2004

Námsvísir Rafiðnaðarskólans fyrir vorönn er kominn út............

18.1.2004

Lífiðn - póstlisti

Nú er hægt að skrá sig á póstlista á www.lifidn.is. Við hvetjum alla sem áhuga hafa á starfsemi lífeyrissjóðsins til að skrá sig og fylgjast með starfseminni á þann hátt.

13.1.2004

Orlofshús rafverktaka - jafnt að sumri sem vetri

Orlofshús rafverktaka er staðsett í fallegu umhverfi í landi Ásgarðs í Grímsnesi, ekki langt frá Álftavatni. Hitaveita, heitur pottur, sólpallar og baðhús gerir það að verkum að húsið er vinsæll hvíldarstaður jafnt að sumri sem vetri.   

12.1.2004

Nýr forstjóri Löggildingarstofu

Viðskiptaráðherra hefur skipað  Tryggva Axelsson í starf forstjóra Löggildingarstofunnar til fimm ára, frá 1. janúar 2004.

7.1.2004

Laun rafvirkja og rafeindavirkja

Talsverð umræða hefur spunnist undanfarið um laun rafiðnaðarmanna í kjölfar umfjöllunar RSÍ um sama efni. Vegna fjölda fyrirspurna til skrifstofu SART er ástæða til þess að fjalla nánar um launakönnun Kjararannsóknarnefndar. 

5.1.2004

Kjarasamningar ættu að nást án átaka

Segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í áramótasamtali við Morgunblaðið:


Samstarfsaðilar

Smelltu á mynd til að fara á vef

Sa til hægri
mannvirkjastofnun
Mannvirkjastofnun
Rafiðnaðarskólinn
Fræðsluskrifstofa
Rafiðnarasambandið
Rafbók
Ákvæðisvinnustofa 
Stafir til hægri

Öryggi fagmennska

Slóðin þín:

Fréttir

Toppmynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Veftré