Fréttir
18.12.2003
Rafiðnaðarsambandið leggur fram kröfugerð sína
Rafiðnaðarsambandið kynnti í dag kröfugerð sína fyrir SART og SA. Þar kemur fram að RSÍ er reiðubúið að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð var 1990 með sameignlegu átaki samtaka atvinnurekenda og launamanna, en leggur áherslu á að tengja verður samninga skýrum efnahagslegum markmiðum og virkum mælistikum.
17.12.2003
Morgunverðarfundur FLR og SART - ábyrgð stjórnenda í hlutafélögum
Fimmtudaginn 11. desember s.l. var síðasti morgunverðarfundur FLR og SART. Árni Harðarson, lögfræðingur hjá Deloitte hf, flutti erindi um ábyrgð stjórnenda (einka) hlutafélaga og afleiðingar vanrækslu, mistaka og lögbrota. Þá fjallaði hann um hugsanlega refsiábyrgð og skaðabótaábyrgð og hvaða atriði er vert að hafa í huga til að forðast hvoru tveggja.
16.12.2003
Lagi sig að leikreglum á almennum vinnumarkaði
Starfsgreinasambandið hefur kynnt SA nýja kröfugerð í lífeyrismálum, þar sem farið er fram á sambærileg lífeyrisréttindi og ríkisstarfsmenn búa við.
15.12.2003
Iðnskólinn í Reykjavík - fjarnám á rafiðnasviði
Fjarnám er að verða stöðugt fýsilegri og betri kostur í starfsmenntun og endurmenntun á mögrum fagsviðum. Iðnskólinn í Reykjavík er þátttakandi í þessari þróun og hefur sett sér eftirfarandi markmið fyrir komandi ár:
3.12.2003
Desemberuppbót
Desemberuppbót rafiðnaðarmanna samkvæmt kjarasamningi RSÍ / SART-SA er 37.000.- og hjá nemum 23.500.-
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













