Fréttir
25.11.2003
Kaupmáttur jókst um 3,3%
Frá Kjararannsóknarnefnd: Á tímabilinu frá 3. ársfjórðungi 2002 til 3. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 5,4%. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,0%.
24.11.2003
Rafmengun
Erum við umvafin heilsuspillandi rafáhrifum eða er um hræðsluáróður að ræða frá óprútnum sjálfskipuðum sérfræðingum ? Fyrirlestur í Rafiðnaðarskólanum miðvikudaginn 26. nóvember n.k. kl. 20:00.
21.11.2003
Opinber rekstur og samkeppnislög
Hinn 27. nóvember nk. fer fram morgunmálþing Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félags forstöðumanna ríkisstofnana á Grand Hótel.
18.11.2003
Eldavélin hættulegasta heimilistækið !
Á hverju ári verður fjöldi fólks fyrir miklu tjóni vegna skemmda á innbúi og heimili vegna eldsvoða út af rafmagnsbúnaði.
17.11.2003
Baráttan gegn fúskinu
Eins og fram hefur komið hér á fréttavefnum hafa helstu hagsmunaaðilar um fjarskiptalagnir gert með sér samkomulag sem hefur það að meginmarkmiði að tryggja vandaðan frágang fjarskiptalagna. Miðað við myndir sem teknar voru á dögunum í nýju fjölbýlishúsi virðist ekki vera vanþörf á.
5.11.2003
Dreifingarkostnaður hækkar mikið
Gert er ráð fyrir að dreifingakostnaður eldsneytis hækki um 6 - 7% ef frumvarp til laga um breytingu á þungaskatti nær fram að ganga. Að mati Olíudreifingar hf. sem er stærsti dreifingaraðili eldsneytis á Íslandi myndu lögin leiða til 15 - 17% hækkunar á þungaskatti.
4.11.2003
Viljayfirlýsing hagsmunaaðila um fjarskiptalagnir
SART, Neytendasamtökin, RUV, Norðurljós, Síminn, OgVodafone og söluaðilar lagna og tengiefnis hafa gert með sér samkomulag, sem hefur það að megin markmiði að .........
Samstarfsaðilar
Smelltu á mynd til að fara á vef













