Beint á leiðarkerfi vefsins
Sart.is

Fréttir

16.12.2002

CE merking véla - Hvað þarf að gera og hvernig?

Námskeið fyrir framleiðendur og innflytjendur véla í janúar 2003
Markmiðið er að þátttakendur verði færir um að greina hvort vörur falli undir vélatilskipun ESB og læri hvernig á að CE-merkja slíkar vörur.

9.12.2002

Heildarsamtökum mismunað

Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir 30 milljóna króna framlagi til ASÍ. Sú mismunun á opinberum fram-lögum sem hér er á ferðinni er alvarlegt brot á þeirri grundvallarreglu að jafnræði eigi að ríkja milli aðila vinnumarkaðarins, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

9.12.2002

Jóla-morgunkaffi FLR

Stjórn félags löggiltra rafverktaka boðar til morgunverðarfundar fimmtudaginn 12. desember n.k. kl. 9:00 árdegis á 6. hæð í Borgartúni 35. Boðið verður upp á jóla-kaffi, piparkökur og ýmislegt annað góðgæti. Auk þess verður á dagskrá athyglisverður fyrirlestur af léttara taginu.

4.12.2002

NÝTT NÁMSKEIÐ HJÁ RAFIÐNAÐARSKÓLANUM

Ertu ein/einn af þeim sem hefur notað tölvu í einhvern tíma og bjargar þér í ritvinnslunni en vildir gjarnan bæta aðeins við þekkinguna? Hér er námskeið sem hentar. Það er stutt, hnitmiðað og markmiðið er að “fylla í götin” og “styrkja undirstöðuna”.

2.12.2002

Rafmagnið og jólin

Rafmagn er einn stórvirkasti brennuvargur nútímans. Á hverju ári verða margir eldsvoðar sem eiga upptök sín í rafbúnaði. Stundum kviknar í vegna bilunar en oftast er um að ræða að gáleysi í umgengni við rafmagn valdi slysum eða íkveikju.

30.11.2002

Brunavarnir heimila

Á þessum árstíma er notkun opins, elds, rafmagnstækja og annars búnaðar í hámarki og af þeim sökum hafa hlotist bæði eldsvoðar og alvarleg slys.

27.11.2002

Meistarafélög í byggingariðnaði sameinast

Fjögur félög meistara í byggingariðnaði hafa stofnað Meistarasamband byggingarmanna (MB), nýtt landssamband meistara í löggiltum iðngreinum í byggingariðnaði. Nýja sambandið hefur 550 löggilta iðnmeistara innan sinna vébanda.

26.11.2002

RARIK - rafræn eyðublöð á netið

RARIK hefur fetað í fótspor Löggildingarstofu og tekið upp rafræna þjónustu fyrir viðskiptavini sína. Framtak þetta hefur mikla hagræðingu í för með sér ekki síst fyrir löggilta rafverktaka sem starfa sinna vegna eru í miklum samskiptum við fyrirtækið. Störf þeirra eru þess eðlis að í mörgum tilfellum eru þeir tengiliður milli seljenda raforku og orkukaupenda.

22.11.2002

ÍST 150 – Fjöldi og staðsetning tengla í íbúðarhúsnæði

Rafstaðlaráð lauk nýlega við gerð staðalsins ÍST 150:2002 Raf- og boðlagnir fyrir íbúðarhúsnæði: Gerð, staðsetning og fjöldi tengistaða, sem gefinn var út og staðfestur af Staðlaráði 1. október. Staðallinn tiltekur lágmarksfjölda og staðsetninu tengla fyrir raf- og boðskiptalagnir í íbúðarhúsnæði. Staðallinn segir einnig til um lagnaleiðir og lágmarksstærðir tengikassa og röra fyrir lagnakerfi.

20.11.2002

Röng notkun eldavéla algengustu brunarnir

Skýrsla Löggildingarstofu um slys og bruna

af völdum rafmagns árið 2001 komin út:

Árlegt eignatjón vegna rafmagnsbruna metið 850 milljónir króna

18.11.2002

Viðauki við virkjunarsamning vegna Austurlands

Undirritaður hefur verið viðauki við virkjunarsamning SA við ASÍ og landssambönd þess, vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Austurlandi. Samningnum er ætlað að mæta þörf á sveigjanlegu vinnufyrirkomulagi og löngum vinnulotum vegna fjarlægðar frá stærstu þéttbýliskjörnum.

10.11.2002

Námskeiðaröð SA um starfsmannamál

SA halda á næstunni námskeið um starfsmannamál fyrir félagsmenn sína, bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni. Boðið verður upp á almenn námskeið um túlkun kjarasamninga og námskeið um nýjungar og áherslur í starfsmannamálum.

6.11.2002

Hækkun launa og tryggingagjalds 1. janúar 2003

Almenn launahækkun verkafólks 1. janúar 2003 er 3,15% en iðnaðarmanna og verslunarmanna 3,4%. Trygginga-gjald atvinnurekenda hækkar um 0,5% þann 1. janúar 2003 eða úr 5,23% í 5,73%.

5.11.2002

Aðalfundur Félags rafverktaka á Vestfjörðum

Félag rafverktaka á Vestfjörðum hélt aðalfund sinn á Ísafirði þann 1. nóvember s.l. Að loknum aðalfundarstörfum kynnti Örlygur Jónatansson Íslensku fjarskiptahandbókina og Snæbjörn Kristjánsson flutti fundinum fróðleik frá Löggildingarstofu auk þess sem Ásbjörn Jóhannesson framkvæmdastjóri SART kynnti nýja heimasíðu samtakanna.

31.10.2002

Laun hækkuðu að meðaltali um 5,6%

Regluleg laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu að meðaltali um 5,6% frá öðrum ársfjórðungi í fyrra til annars ársfjórðungs í ár. Launavísitalan hækkaði á sama tíma um 5,5% og samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 0,1%.

Sjá nánar á vef Kjararannsóknarnefndar

25.10.2002

Nýr vefur, aukin þjónusta

Markmiðið með nýjum vef SART er að auka þjónustu við félagsmenn og almenning. Innranetið er aðeins fyrir félagsmenn og geta þeir sem höfðu aðgang að gamla vefnum notað sömu aðgangs og lykilorðin. Aðrir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofu SART

14.10.2002

Íslenska fjarskiptahandbókin er komin út

Á sama hátt og tuttugasta öldin er oft kölluð tölvuöld er ekki ólíklegt að nýhafin öld fái nafngiftina fjarskiptaöld. Svo segir Örlygur Jónatansson í formála bókar sinnar.


Samstarfsaðilar

Smelltu á mynd til að fara á vef

Sa til hægri
mannvirkjastofnun
Mannvirkjastofnun
Rafiðnaðarskólinn
Fræðsluskrifstofa
Rafiðnarasambandið
Rafbók
Ákvæðisvinnustofa 
Stafir til hægri

Öryggi fagmennska

Slóðin þín:

Fréttir

Toppmynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Veftré